Leyniperlu Beautyboxið !

Við kynnum með stolti vörurnar í Leyniperlu Beautyboxinu !! Allar vörurnar í Leyniperlu Beautyboxinu eru á 20% afslætti út júní 2024 með afsláttarkóðanum PERLA. Afslátturinn gildir bæði í verslun Beautybox í Síðumúla 22 (munið að segja kóðann) og í netverslun.   Vörurnar í Leyniperlu Beautyboxinu eru kannski ekki eins áberandi og vörurnar í Hype Beautyboxinu, […]

Rakakremið sem bjargar þurri húð

Nú hefur dásamlega franska hágæða merkið Sisley Paris verið hjá okkur í rúmt ár og algjörlega fangað okkar snyrtivöru hjarta. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að vörurnar eru langt frá því að vera þær ódýrustu en góðar eru þær og því er svo frábært að fá vörur frá þeim í Leyniperlu Beautyboxið okkar […]

„Retinolið“ fyrir viðkvæmu húðina!

Time Miracle Botanic Retinol serumið sem leyndist í Leyniperlu Beautyboxinu er ein sú vara sem að kom mér mest á óvart í fyrra þegar hún kom út. Ég viðurkenni að mér finnst nafnið og lýsingin á vörunni vera svolítið ruglandi fyrir leikmenn, en af því að varan er svo góð þá báðum við sérstaklega um […]

Hármeðferðin sem nýtist á þvottadegi.

Þegar ég ferðast erlendis finnst mér fátt skemmtilegra en að fara í snyrtivöruverslanir. Kærasti minn skilur ekkert í þessu, því ég „á víst heila verslun af þessu heima“ en það er bara svo margt gaman við að skoða erlendar verslanir. Það er gaman að sjá nýjar og spennandi vörur og merki, hvernig vörurnar eru settar […]

Maskarinn með ofnæmisfríu vottunina!

Það er einflaldlega alltaf gott og gaman að prófa nýja maskara en vandamálið er að maskari eru sú snyrtivara sem þú getur oftast ekki prófað nema kaupa hann í fullri stærð. Eins litrík og lofandi lýsingin á honum getur verið, þá þarf maður einfaldlega bara að prófa hann sjálfur til þess að sjá hvort hann […]

Líkamskremið sem fagnar 25 ára afmæli í ár!

Elizabeth Arden Green Tea Honey Drops er eflaust þekktasta varan sem leyndist í Leyniperlu Beautyboxinu okkar og líklega eitt frægasta líkamskrem í heiminum en kremið fagnar einmitt 25 ára afmæli í ár. Því fannst okkur gullið tækifæri til þess að minna á þessa frábæru vöru. Í heimi þar sem allt snýst um nýjungar þá er […]

Vinsælustu vörur Beautybox árið 2023! – þið hafið „kosið“ !

Gleðilegt nýtt ár elsku bestu viðskiptavinir, vinir og samstarfsfélagar 🙂 ! Við þökkum fyrir það gamla og hlökkum til að fylgja ykkur árið 2024. Í byrjun nýs árs er gaman að fara yfir það gamla og skoða hvaða vörur þið hafið gert þær vinsælustu yfir árið, því þessar kosningar eru alfarið ykkar „kosningar“ eða það […]

SENSAI – Hversdagsförðun fyrir þroskaðar konur

Helga Kristjáns sýnir okkur fallega förðun á Líney Benediktsdóttur. Helga Kristjáns notaði eftirfarandi vörur í förðunina og eru þær allar linkaðar hér fyrir neðan. Við vonum að þið njótið góðs af sýnikennslunni og ekki hika við að kíkja til okkar eða hafa samband ef það er eitthvað sem við getum aðstoðað ykkur með. ❤️ Absolute […]

Taktu Pláss.. það má

Við erum þeirrar gæfu njótandi að hafa eignast frábæra nýja nágranna og vini þegar við fluttum í Síðumúla 22. Á móti okkur er nefnilega verslunin Systur og Makar sem hugmyndaboltinn Katla Hreiðarsdóttir á og rekur en þar er bæði hannaður og saumaður fallegur kvenfatnaður og ásamt því er hún einnig með frábært úrval af gjafavöru […]

Plump it! – ái eða æði?

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Plump it! vörurnar mættu í Beautybox fyrr á árinu. Fyrsta sendingin seldist upp á methraða og hafa vörurnar ekki stoppað lengi í hillunum síðan. Ástæðan fyrir því er einföld, Plump it! er vara sem virkar og þú sérð muninn strax. Það mætti segja að stórar varir hafi […]

Fagurfræði og gæði Sisley Paris

Í febrúar á þessu ári fengum við til okkar franska hágæðamerkið Sisley Paris og er það í fyrsta skipti sem að vörurnar fást hér á Íslandi, okkur þykir ekkert skemmtilegra en að kynna ykkur fyrir nýjum, dásamlegum merkjum með Beautyboxinu okkar og því vorum við ótrúlega ánægð með það að fá tvær vörur frá merkinu […]

Feikaðu það – þangað til þú meikar það ! – hvar er sólin?

Undirrituð svaraði viðtali við Fréttablaðið á sínum tíma sem bar yfirskriftina „Myndi aldrei ganga í húðlituðum fötum“. Árið var 2012 og ég hafði nefnilega ekki enn kynnst eða þorað að nota sjálfbrúnku. Ljósir jarðartónar fóru mér ekki vel því ég vildi ekki ganga í fötum sem voru alveg eins og ég á litin og létu […]

Oh my GOSH ! andlitslyfting á tveimur mínútum

Sápubrúnir hafa svo sannarlega verið mikið HYPE síðustu árin og átti því Gosh Copenhagen Brow Lift Lamination gelið svo sannarlega heima í HYPE Beautyboxinu. Eins og vanir Beautyboxarar vita þá finnst okkur fátt skemmtilegra en að kynna fyrir ykkur ný merki með Beautyboxinu okkar en Gosh Copenhagen er svo sannarlega ekki glænýtt merki á íslenskum […]

Hárvörumerkið sem hefur unnið til yfir 180 verðlauna á 5 árum.

Árið 2018 gaf Sisley Paris út nýtt hárvörumerki sem þau skýrðu Hair Rituel by Sisley Paris. Þó svo að merkið sé ungt, þá byggir það á yfir 40 ára sögu merkisins og heldur í gildi merkisins sem eru að nota aðeins það besta úr plöntuheiminum í bland við nýjustu og bestu tæknina til þess að […]

Leyndardómar La Mer

Það var okkur einstakur heiður vera með hið víðfræga La Mer Moisturising Soft Lotion í Deluxe beautyboxinu okkar. La Mer á sér nefnilega stórmerkilega sögu og er ein af þessum vörum sem þú verður að prófa til þess að skilja hvað allir eru að tala um. Stofnandi La Mer, geimeðlisfræðingurinn Dr. Max Huber, brenndi sig […]

Allt um EGF og nýja merkið okkar Skincell

Það eru varla hægt að gefa út Beautybox nema kynna í því nýja, spennandi og framúrskarandi vöru og því er einstaklega skemmtilegt að kynna fyrir ykkur nýja suður-kóreska vörumerkið Skincell sem kom til okkar í lok síðasta árs. Árið 1986 hlutu Dr. Stanley Cohen og Dr. Rita Montalcini Nóbelsverðlaun í lífeðlisfræði/læknisfræði fyrir uppgötvun sína á […]

Retinól fyrir augnsvæðið

Það er fátt meira dekur en að eiga góða kvöldstund og setja á sig maska. Því varð að sjálfsögðu að vera maski í DELUXE Beautyboxinu okkar. Í boxinu leyndist Vital Perfection Uplifting and Firming Express Eye Maskinn frá Shiseido, sem er svo sannarlega enginn venjulegur augnmaski. Vital Perfection Uplifting and Firming Express augnmaskinn er nefnilega […]

Yfirlakkið sem breytir leiknum!

Nailberry naglalökkin hafa svo sannarlega slegið í gegn hjá okkur. Ekki bara af því að litirnir eru einstaklega fallegir, heldur vegna þess að þau fara vel með neglurnar. Nailberry naglalökkin hleypa í gegn um sig raka og súrefni og eru án 12 skaðlegustu efna sem algengt er að finna í naglalökkum. Það hafa eflaust margir […]

Förðun í Jólapartý Systra og Maka

Við erum þeirrar gæfu njótandi að hafa flutt í Síðumúla 22 í júní og þar með eignast nýja yndislega nágranna í versluninni Systur og Makar. Katla Hreiðarsdóttir eigandi Systra og Maka er sannkallaður kvenskörungur og annan eins orkubolta og hugmynda og dugnaðarfork er erfitt að finna. Ár hvert heldur hún Jólapartý með live streymi og […]

Partý Prepp Beautyboxið

Við kynnum með stolti Partý Prepp Beautyboxið sem seldist upp á innan við sólarhring ! Partý Prepp Beautyboxið innihélt 6 vörur sem hjálpa þér að líta og líða eins og Hollywood stjörnu á árshátíðinni, jólahlaðborðinu og hátíðardögunum fram undan. Eftir partýskort síðustu ára vitum við að mörgum langar að skarta sínu allra besta á komandi […]

Næturserum sem endurnýjar húðina á meðan þú sefur

Mádara Sleep and Peel næturserumið sem leyndist í Partý Prepp Beautyboxinu er hin fullkomna vara til þess að undirbúa húðina vel fyrir fallega förðun. Við trúum því að falleg förðun byrji á undirbúningnum, og þegar það er tilefni til þess að vera extra sætur þá er algjörlega þess virði að byrja á húðinni nokkrum dögum […]

Nokkrir dropar og þú ljómar

Við dýrkum vörur sem gefa okkur extra ljóma og smá lit, það er einfaldlega fátt sem er bústar sjálfstraustið meira en að vakna með jafnari húðlit og smá brúnku, maður er einfaldlega bara svo til í daginn, nývaknaður og ferskur. St. Tropez er hágæða sjálfbrúnkumerki með langa sögu en nýlega hafa þeir verið að uppfæra […]

Silkimjúk og rakanærð húð á meðan þú sefur

Við elskum að kynna fyrir ykkur ný merki í Beautyboxunum okkar og í Partý Prepp Beautyboxinu leyndist vara frá nýjasta húðvörumerkinu okkar Raybae. Það er að mörgu að huga þegar maður tekur inn nýtt húðvörumerki og hvað þá merki sem er frekar nýlegt á markaði og frekar óþekkt. En við vorum ekki lengi að ákveða […]

Maskarinn sem setur punktinn yfir i-ið

Flottur maskari setur alltaf punktinn yfir i-ið og því er ótrúlega gaman að leyfa ykkur að prófa frábæra maskarann frá Shiseido í Partý Prepp Beautyboxinu. Maskari er sú förðunarvara sem flestir nota á stóru dögunum og því fannst okkur tilvalið að leyfa ykkur að prófa þessa dásemd. Það er jú hægt að tala endalaust um […]

Hitavörnin frá Lee Stafford – nú með nýjum, mildari ilm

Við höfum áður skrifað um mikilvægi þess að verja hárið þegar það er mótað með hita og eins og við höfum áður sagt þá er sléttujárnið þitt nógu heitt til þess að elda mat! Svo það er eins gott að verja hárið gegn skaða. Það sem getur gerst ef þú notar ekki hitavörn er: Hárliturinn […]

Lúxúsilmvötnin sem seljast á 2 sekúndna fresti, á ótrúlegu verði.

Við elskum að kynna fyrir ykkur nýjar vörur í Beautyboxinu okkar og er í fyrsta skipti ilmvatnsprufa í boxinu frá breska ilmvatnshúsinu Milton Lloyd sem er breskt ilmvatnshús. Milton Lloyd er fjölskyldufyrirtæki í London þar sem nokkrir ættliðir vinna. Sagan þeirra heillaði okkar þrátt fyrir að við höfðum við aldrei heyrt um þetta flotta fyrirtæki […]

Tan vandræði – og hvernig á að leysa þau

Nú þegar sólin lækkar á lofti og sumarbrúnka flestra rennur af eru margir sem vilja viðhalda smá lit yfir vetrartímann. Sumum finnst þetta samt sem áður agalegt vesen og hafa lent í allskonar brúnkuslysum yfir árin – og þar á meðal við! Þess vegna tókum við saman nokkur bestu ráðin sem við höfum fengið og […]

Klínísk rannsókn á ávaxtasýruskífunum sem seljast á 2 sekúndna fresti

Við höfum ekki farið leynt með ást okkar á vísindalega rannsökuðum húðvörum – sem er einmitt það sem gerir Dr Dennis Gross vörurnar eins áhrifaríkar og þær eru. Við Beautybox-teymið fórum til Osló á námskeið í maí og lærðum enn meira um þessar frábæru vörur og vísindin á bak við þær. Dr Dennis Gross er […]

Pro Aging Beauty Tips með Sensai

Helga Kristjáns sýnir fallega förðun með unglegt yfirbragð að leiðarljósi og kennir okkur allskonar sniðug ráð. Sensai er á 20% afslætti 17-23 ágúst í tilefni 5 ára afmæli Beautybox og snyrtivöru ráðgjafi Sensai stendur vaktina með okkur í vikunni í Síðumúla 22 svo endilega kíkið í heimsókn. Til að skoða Sensai í netverslun SMELLTU HÉR […]

Hvað leyndist í Regnboga Beautyboxinu?

Regnbogaboxið fer yfir allan regnbogan af húðvörum og með þessu boxi viljum við leiðbeina ykkur að búa til ykkar eigin húðrútínu og útskýra hvert skref fyrir sig. Vörurnar í boxinu gera allt sem við þurfum, þær hreinsa, skrúbba, gefa raka, ljóma og vinna á ótímabærri öldrun húðarinnar. Þær innihalda spennandi og frábær stjörnuinnihaldsefni sem gera […]

Hvað er að tvíhreinsa húðina?

Fyrr á árinu sá ég skoðanakönnun inn í Caroline Hirons Skinfreaks grúbbunni á Facebook (sem ég mæli með fyrir alla áhugasama um húðumhirðu) þar sem ein í hópnum spurði meðlimi hvað það væri sem hefði breytt mestu fyrir húðina þeirra. En það sem var einna helst áberandi var hversu margir sögðu að tvíhreinsun húðarinnar hafi […]

Að „flysja“ húðina, eða hvað sem við eigum að kalla það

Margir segja að leyndarmálið á bak við Hollywood ljómann sé vel “skrúbbuð” húð. Aftur á móti eru margir húðsérfræðingar sem mæla eindregið á móti því að nota kornaskrúbba og hvetja frekar til notkunar ávaxtasýra eða ensíma. Vandamálið okkar er þó að okkur vantar íslenskt orð yfir „exfoliate“ því það er ekki fræðilegur möguleiki að við […]

Hver er tilgangurinn með rakavatni og tóner?

Í Regnboga Beautyboxinu leyndist Erborian YuZa Double Lotion sem er blanda af rakavatni og tóner. En hver er tilgangurinn með því að nota tóner og rakavatn og hver er munurinn?   Það er ekki svo langt síðan að flestir andlitshreinsar voru að mestu byggðir upp sem sápur og voru því mun basískari en þeir hreinsar […]

Hver er munurinn á þurri húð og rakaþurri húð?

Moisture Surge rakakremið sem leyndist í Regnboga Beautyboxinu þarf vart að kynna, en það er eitt vinsælasta rakakremið á markaðnum í dag og selst eitt stykki á hverjum sjö sekúndum í heiminum. Moisture Surge er gætt þeim kosti að það virðist henta næstum því öllum og eru þeir sem eru með rósroða oft mjög hrifnir […]

Af hverju Bakuchiol og af hverju augnkrem?

Við fáum oft spurninguna þarf ég að nota augnkrem? Stutta svarið við þessu er nei ekkert endilega, ef þú vilt ná fram ákveðinni virkni eða ert nú þegar að nota virk krem á andlitið sem mega ekki fara á augun þá er augnkrem betri kostur. Húðin í kringum augun: Er alltaf á hreyfingu Framleiðir ekki […]

Sólarvarnir alla daga, allan ársins hring!

Við getum að sjálfsögðu ekki gefið út húðumhirðu Beautybox nema að hafa sólarvörn í boxinu. En það er gaman að segja frá því að boxið var tæknilega séð tilbúið, en þegar við horfðum á það og hugsuðum aðeins betur þá vissum við einfaldlega að við urðum að fá sólarvörn í það líka.Við höfðum því samband […]

7 Skins Method – nýjasta trendið frá Kóreu

7 Skins Method eða 7 laga leiðin eins og við ætlum að kalla hana er kóreskt húðumhirðu trend sem felur í sér að setja 3-7 umferðir af rakavatni, essence, rakaspreyi eða toner (sem þurrkar ekki) á hreina húðina áður en rakakrem er sett á. Við uppgötvuðum þetta trend eftir að fylgjast með í alþjóðlegri húðgrúbbu […]

Goðsagna Beautyboxið

Goðsagna Beautyboxið innihélt 6 vörur sem eiga það sameiginlegt að vera algjörar goðsagnir. Vörurnar eru annað hvort margverðlaunaðar, metsöluvörur eða nýjar frá merkjum sem eru goðsagnir í sínum flokki. Í boxinu voru 4 förðunarvörur, 1 húðvara og 1 vara sem er blanda af báðu. Vörurnar í Goðsagna Beautyboxinu eru að andvirði 13.476 kr. Til þess […]

Þurfum við að pæla í ónæmiskerfi húðarinnar? Ultimune frá Shiseido hefur unnið yfir 200 snyrtivöruverðlaun !

Ultimune sem leyndist í Goðsagna Beautyboxinu stendur svo sannarlega undir nafni enda eru fáar snyrtivörur á markaði sem hafa unnið jafn mörg snyrtivöruverðlaun. Ultimune býr yfir 25 ára rannsóknarvinnu sem er samstarf á milli Shiseido og MGH-Harvard Cutaneous Biology Research Center. Á tímum Covid pæla margir í því að efla ónæmisvarnir líkamans. Með sterkara ónæmiskerfi […]

Maskarinn frá Maybelline sem flaug upp á toppin

 Við höfum sjaldan séð vöru rjúka jafn hratt úr hillunum um leið og hann kom í sölu og Sky High maskarinn frá Maybelline sem leyndist í Goðsagna Beautyboxinu. Sky High gerði allt gjörsamlega vitlaust á TikTok árið 2021 þar sem hann var merktur á yfir 39 milljón myndböndum en einnig vann hann Allure Beautyverðlaunin árið […]

Ljómabomba með ávaxtasýrum, C vítamíni og níasínamíð frá Glamglow

Við vitum að maskar slá alltaf í gegn í Beautyboxinu og við meira að segja fengið kvartanir í þau fáu skipti sem það hefur ekki verið maski í boxinu 😊 og það er eitthvað merki sem er goðsögn í maskaheiminum þá er það Glamglow. Því er mjög skemmtilegt að fá að prófa nýjasta maskann þeirra […]

Grunnurinn að fallegri förðun með Smashbox

Farðagrunnar eru eitthvað sem allir ættu að prófa. Þeir sem þekkja ekki vel til farðagrunna telja þetta kannski vera óþarfa skref, en við hvetjum ykkur eindregið til þess að prófa því að farðagrunnur sem hentar þinni húð getur gert kraftaverk. Í Goðsagna Beautyboxinu leyndust einmitt 2 farðagrunnar frá Smashbox sem veita mismunandi áferð og því […]

Mest seldu vörurnar árið 2021 – vinsælustu nýjungar 2021 og vonarstjörnur 2022

Það er að mörgu að huga ef maður ætlar að gera sanngjarnan og sannan snyrtivöruvinsældalista. Það er jú ekkert mál að kíkja á sölutölur einstakra vara og sjá að mest selda vara ársins 2021 var Lash Volumizer frá Sensai. Aftur á móti ef við teljum saman Bronzing Gelið í öllum 3 litunum þá á það […]

Nýtt SENSAI förðunarmyndband með Helgu Kristjáns. Klassísk Spariförðun

Hega Kristjáns sýnir fallega kassíska spariförðun. Vörurnar sem hún notar í myndbandinu eru hér fyrir neðan. Sensai Micro Mousse Essence Day Veil Total Eye Treatment Glowing Base Flawless Satin Total Finish (Photoshop púðrið) Eye Shadow Palette í litnum Frosty Twilight Bronzing Powder í lit nr 2 Liquid Eyeliner í svörtum lit Eyebrow Pencil í lit […]

Laumugull – vörur sem er vert að veita athygli

Við hjá Beautybox.is erum þeirrar gæfu njótandi að fá að prófa allskonar snyrtivörur. Það er okkur mjög mikilvægt að prófa vörur til þess að vita hvað við erum að tala um og til að geta aðstoðað ykkur sem allra best. Hér á eftir eru nokkrar vel valdar vörur sem eru í miklu uppáhaldi hjá okkur […]

Hvað leyndist í Tímalausa Beautyboxinu?

Nýjasta Beautyboxið okkar var sannkallað aföldrunar (anti-ageing) box en ó hvað okkur vantar fallegra orð fyrir það svo boxið fékk nafnið Tímalausa Beautyboxið. Í boxinu leyndust 5 vörur sem áttu það allar sameiginlegt að varðveita æskuljómann og vernda okkur gegn skaðlegum áhrifum umhverfisins. Vörurnar eru virkar, byggðar á vísindum og verndandi. Boxið var einstaklega veglegt […]

ChitoCare undraefnið úr hafinu – Viðtal við Sigríði Vigfúsdóttur framkvæmdarstjóra ChitoCare

Við höfum heyrt að margir tóku andköf af gleði að sjá nýja ChitoCare Anti Ageing Repair Serumið í fullri stærð í boxinu, enda ekki furða því serumið er að andvirði 9.750 kr, glænýtt og ótrúlega spennandi vara. ChitoCare Serumið er einstaklega rakagefandi, mjúkt og eins og hún Agnes okkar segir í sýnikennslunni hérna fyrir neðan […]

Meistari ávaxtasýranna Dr. Dennis Gross er mættur á Beautybox.is

Okkur þykir fátt skemmtilegra en að kynna fyrir ykkur nýjar vörur og ný merki með Beautyboxinu okkar en þetta er í 5 skipti sem við gerum það og alls ekki í það síðasta 😉. Í þetta skiptið erum við extra spennt því merkið er ekki bara nýtt hjá okkur heldur nýtt á Íslandi og hefur […]

Maskinn sem kom GLAMGLOW á kortið

Youthmud maskinn frá Glamglow leyndist í Beautyboxinu sem er einstaklega spennandi því hann er ástæðan fyrir því að Glamglow merkið komst á kortið. Það sem gerir maskana frá Glamglow einstaklega góða er að þeir eru meira en bara maskar, þeir eru meðferðir líka enda heita allir maskarnir þeirra Mask-Treatment. Þeir eru virkir og þeir virka. […]

Síðara, þykkara og heilbrigðara hár með Hairburst Volume & Growth Elixir

Ég skil manna best þörfina fyrir það að blása, krulla og slétta hárið, enda jafnast fátt á við nýþvegið og fallega mótað hár. Hitinn getur aftur á móti skaðað á okkur hárið og ef þú ert ein af þeim sem er alltaf að safna en ekkert gerist þá er hitavörnin klárlega besti vinur þinn. Því […]

Hver er munurinn á kemískri sólarvörn og steinefna sólarvörn?

Í Tímalausa Beautyboxinu leyndist að sjálfsögðu sólarvörn, því þetta væri ekki alvöru „anti-ageing“ box nema það væri sólarvörn í boxinu enda er sólarvörnin það eina sem þú ættir aldrei að sleppa ef þú vilt komst hjá ótímabærum einkennum öldrunar. En sólin er einmitt ábyrg fyrir 90% af ótímabærri öldrun húðarinnar og það er ekki bara […]

Lærðu að farða þig eins og J-Lo með Sensai

Helga Kristjáns­dótt­ir förðun­ar­meist­ari kenn­ir okk­ur helstu trix­in til að vera eins og söng­kon­an J-Lo. J-Lo er þekkt fyrir að vera með ljómandi fallega og sólkyssta húð, smokey augnförðun og ferskjulitaðar varir. Förðunin er falleg og djörf og ýtir svo sannarlega undir sjálfstraustið. Við mælum með að prófa og jafnvel skarta þessari fallegu förðun við gott […]

Augnförðun 101 með Helgu Kristjáns og SENASAI

Í tilefni SENSAI daga í netversluninni 9-12. apríl okkar sýnir Helga Kristjánsdóttir fallega augnförðun með SENSAI. Í myndbandinu notar Helga eftirfarandi vörur sem eru allar hér fyrir neðan: Highlighting Concelar – 02 Translucent Loose powder – einn litur Total Finish TF203 Augnskuggapalletta – 03 Petal Dance Bronzing Powder 02 Liquid Eye Liner 02 Lash Volumiser […]

1 flaska af Bioderma Sensibio H2O selst á 2 sekúndna fresti

Glöggir hafa tekið eftir því að franska apótekaramerkið Bioderma er mætt til okkar á Beautybox.is. En þó svo merkið sé nýtt hjá okkur þá hefur það fylgt okkur lengi en við mæðgurnar höfum notað Bioderma Sensibio H2O hreinsinn sem leyndist í Ljómandi Beautyboxinu í um 9 ár! Agnes Björgvins fer yfir Ljómaboxið með okkur 🙂 […]

Tiktok Glossinn sem allir eru að missa sig yfir

Lifter Glossinn frá Maybelline hefur verið að gera allt vitlaust á Tiktok síðustu mánuði. Glossinn er loksins kominn til Íslands og var að sjálfsögðu í Ljómandi Beautyboxinu. Við mælum með að kíkja á Tik Tok og leita af #liftmymood :). Agnes Björgvins fer yfir Ljómaboxið með okkur 🙂 Lifter Gloss sýnikennslan byrjar á 05:50. Lifter […]

Ljómandi og sólkysst húð með My Clarins Re-Boost

Við höfum sagt það áður og segjum það aftur, við elskum lituð dagkrem. Það er einfaldlega vara sem flestir geta notað og gerir svo mikið fyrir okkur án þess að vera of flókin eða fyrirferðarmikil. Í Ljómandi Beautyboxinu okkar leyndist einmitt nýjasta litaða dagkremið okkar frá My Clarins. Agnes Björgvins fer yfir Ljómandi Beautyboxið með […]

Ljómandi hrein húð með Supermud frá Glamglow

Einn vinsælasti maski í heiminum Supermud frá Glamglow leyndist í Ljómandi Beautyboxinu. Glamglow var stofnað árið 2010 hjónunum Glenn og Sharon Dellimore fyrir Hollywood stjörnur og kom Supermud maskinnn út árið 2013 og varð samstundis mest selda húðvara Sephora í sögu verslunarinnar. Nú 9 árum síðar er maskinn enn á top listum allstaðar þegar kemur […]

Segðu fyrirgefðu við hárið þitt með Lee Stafford

Lee Stafford hárvörurnar er nýjasta hárvörumerkið okkar á Beautybox.is en vörurnar höfum við þó þekkt lengi. Nýjasta lína Lee Stafford heitir Hair Apology og vorum við svo heppin að fá að leyfa ykkur að kynnast vörulínunn í Ljómandi Beautyboxinu en í því leyndist vara í fullri stærð Hair Apology Power Shots að andvirði 3.950 kr. […]

Kremaugnskugginn frá Bobbi Brown sem endist allan daginn

Það var þvílík lukka að fá vöru frá lúxus vörumerkinu Bobbi Brown í Ljómandi Beautyboxið okkar. Við erum miklir Bobbi Brown aðdáendur enda eru vörurnar fallegar, vandaðar og með frábærum innihaldsefnum. Bobbi Brown Long Wear Cream Shadow Stick í litnum Golden Bronze leyndist í boxinu en það sem er svo frábært við augnskuggann er að […]

Tilfinningalegar bólur

Við höfum flest lent í einhverskonar áföllum í lífinu, stórum eða smáum. Hvort sem það voru sambandsslit, vinnumissir, vinamissir, mikið álag eða annað sem kemur okkur í uppnám. Margir kannast örugglega við að með auknu álagi fer húðin í rugl. Það er líka alveg týpískt að lenda í því að fá eina stóra jólabólu eða […]

Vinsælustu vörur Beautybox.is árið 2020.

Árið 2020 var undarlegt en við erum afar þakklát fyrir það hversu marga nýja frábæra viðskiptavini við höfum eignast á árinu. Árið 2020 var árið þar sem margir lærðu að versla á netinu og njóta þess að skoða og fræðast um snyrtivörur á netinu. En við höfum tekið saman vinsælustu vörurnar okkar árið 2020 og […]

SOS bjargar húðinni þegar hún er rakaþyrst!

Gott rakakrem er gulls í gildi og í þessum hitabreytingum þá veit húðin okkar einfaldlega ekkert hvað hún á að gera. Eina vikuna er -7 gráður og hina +7. Rakastigið er líka óútreiknanlegt en oftast er það mjög þurrt. Við förum úr heitum húsum út í kulda, rigningu og rok og húðin okkar hér á […]

Rakagefandi brúnka frá St. Tropez

Við elskum að vera með smá lit á okkur. Það er bara eitthvað við smá brúnku sem gefur okkur smá auka sjálfstraust og gleði. Við dýrkum líka rakagefandi vörur og sameinar St. Tropez brúnkugelið sem var í Beautyboxinu þessa 2 hluti á frábæran hátt. Það besta við St. Tropez Express brúnkugelið er að það þarf […]

Mest seldi maskari Maybelline í Beautyboxinu!

Við ELSKUM maskara! Enda ljóshærðari en allt og með hvít augnhár og algjörlega glærar án uppáhalds vörunnar okkar. En það eru fleiri konur sem elska maskara og voru konur byrjaðar að dekkja á sér augnhárin 4000 ár fyrir Kr. Það er bara eitthvað extra við það að leggja áherslu á augun okkar og draga athygli […]

Gæði og fegurð frá Nailberry

Nailberry nagalalökkin hafa heldur betur slegið í gegn hjá okkur og það kemur okkur svo sannarlega ekki á óvart. Nailberry naglalökkin eru ekki bara ótrúlega falleg, og þá meinum við bæði litirnir og umbúðirnar heldur eru þau einfaldlega bara frábær að öllu leiti. Við vorum því himinlifandi yfir því að hafa þau í Beautyboxinu okkar, […]

Shiseido í Beautyboxinu! – nýtt merki

Með Beautyboxinu fylgdu aldeilis skemmtilegar fréttir en Shiseido fæst nú á hjá okkur á Beautybox.is og í boxinu leyndist Shiseido ModernMatte Powder Lipstick lúxusprufa í litnum Coctail Hour eða Kitten Heel. Shiseido er japanskt merki sem var fyrst stofnað árið 1872 af lyfjafræðingnum Arinobu Fukuhara. Saga Shiseido er einstaklega falleg og hvetjandi en stefna Shiseido […]

Hvernig er hægt útskýra snyrtirútínuna fyrir karlmönnum

Smá húmor fyrir helgina 🙂 Snyrtivöruheimurinn getur verið ansi flókinn og við efumst ekki um að það séu margir karlmenn (og reyndar alveg örugglega margar konur líka) sem geta stutt sig við eftirfarandi grein þegar útskýra skal snyrtirútínuna. Til að einfalda málið fengum við lánaða grein frá Múrbúðinni sem heitir „Góð ráð við málun á […]

Hvað leyndist í BÚST! Beautyboxinu

BÚST! Beautyboxið kom út á dögunum og erum við ótrúlega stolt af þessu boxi. Við viðurkennum að við erum alltaf smá stressuð þegar við gefum út box, enda margra mánaðar vinna á bak við boxin og viljum við passa að halda þeim spenanndi og veglegum í hvert skipti. BÚST! Beautyboxið var einmitt smá öðruvísi box […]

Vitamin Glow Primerinn frá Smashbox – og eplið

Vitamin Glow farðagrunnurinn frá Smashbox var í BÚST! Beautyboxinu okkar því hann er einfaldlega frábær og þvílíkt vítamín BÚST! fyrir húðina okkar. Farðagrunnar hafa aldrei verið vinsælli en nú í dag og er Smashbox einmitt þekktast fyrir það að vera með frammúrskarandi farðagrunna fyrir allar húðtegundir. Vitamin Glow er nýjasti farðagrunnurinn þeirra og hefur svo […]

Lífrænar, dásamlegar og umhverfisvænar vörur frá Mádara

Ef það var eitthvað í BÚST! Beautyboxinu sem allir geta notað þessa dagana þá var það Mádara ANTI handsprittið. Handspritt er svo sem ekki mest spennandi snyrtivara í heiminum, en hey – sú allra  nauðsynlegasta þessa dagana og á svo sannarlega við. Mádara gaf út ANTI línuna fyrr á árinu til að svara eftirspurn eftir […]

Kraftaverkaseiðið Advanced Night Repair í endurbættri útgáfu

Já við höfum oft spjallað um Advanced Night Repair áður, en það var einmitt í jólaboxinu okkar í fyrra. Þegar okkur bauðst að hafa það aftur í BÚST! Beautyboxinu þá hugsuðum við okkur 2x um því við viljum nú ekki hafa það að vana að endurtaka okkur. EN Advanced Night Repair er nú engin venjuleg […]

Hvítari tennur með Mr. Blanc

Mr. Blanc tannkremið kom örugglega mörgum á óvart í BÚST! Beautyboxinu okkar enda var vörumerkið ekki komið í sölu hjá okkur fyrr en við sendum boxið frá okkur, því var það extra óvænt ánægja að kynna merkið og vöruna með boxinu. En ef það er eitthvað sem við höfum lært af Hollywood stjörnunum þá er […]

SENSAI förðun fyrir alla eftir Helgu Kristjáns

Ný sýnikennsla í boði SENSAI eftir Helgu Kristjáns. Nú notar Helga, lúxusfarðann okkar CP Cream Foundation.  Hann er þéttastur af kremförunum sem við erum með og er uppbyggjandi. Helga byrjar á því að undirbúa húðina með Micro Mousse. Hvað er Micro Mousse? Loftkennd froða sem inniheldur örsmáar kolsýrðar loftbólur sem eru minni en húðholurnar. Þannig kemst […]

Gunna ameríska – viðtal við snyrtivöru drottningu Íslands

Þegar við hittum Gunnu fyrst þá vorum við algjörlega heillaðar. Gunna er einu orði sagt stórglæsileg og ástríðan fyrir snyrtivörum algjörlega skín af henni. Það er alveg ómetanlegt að fá að læra af einni reynslumestu konu landsins þegar kemur að snyrtivörum. Ég spurði Gunnu hvort ég mætti ekki taka við hana smá viðtal því hennar […]

Leyndarmálið á bak við ljómandi húð.

Undirstaðan að fallegri förðun er eins og við vitum flest húðumhirða, en húðvinna er alveg jafn mikilvæg.   Grunnvinna í förðun og réttu vörurnar skipta sköpum þegar kemur að því að láta förðunina endast liðlangan daginn og líta lítalausa út. Smashbox var búið til í ljósmyndastúdíói í Los Angeles og sérhæfir merkið sig í farðagrunnum […]

Mjúkur grafískur eyeliner – afmælisförðun Beautybox.is

Í tilefni þess að Beautybox.is er ÞRIGGJA ára vildum við gera skemmtilega förðun. Það er hægt að leika sér svo ótrúlega mikið þegar kemur að förðun og í þessari sýnikennslu gerðum við grafískan eyeliner.   Fókusinn var á augunum hér og þá er mikilvægt að augabrúnirnar séu einnig fallegar. Við notuðum Max Factor Brow Revival […]

No Makeup Makeup í örfáum skrefum

Í nýjustu sýnikennslunni okkar gerðum við no makeup makeup. Frískleg förðun sem hentar öllum vel hvenær sem er.   Til að undirbúa húðina notuðum við Nip+Fab C vítamín maskann. Þessi maski er einstaklega góður til að nota áður en þú farðar þig. Maskinn breytir daufu yfirbragði húðarinnar, gerir húðina bjartari, rakameiri og jafnar húðlitinn. Hafið […]

Next Level Beautyboxið

Next Level Beautyboxið innihélt 7 vörur sem taka húð, hár og naglaumhirðuna á hærra stig! Vörurnar völdum við út frá innihaldsefnum og eiginleikum sem gera þær einstakar og höfum við því skrifað sér blogg fyrir hverja og eina vöru sem er hægt að nálgast neðst í þessu bloggi. Að vana leyndist súkkulaði í boxinu og […]

Origins GinZing litað dagkrem sem gefur húðinni orkuskot

Við einfaldlega elskum lituð dagkrem og þá sérstaklega á sumrin. Þau eru auðveld í notkun og gefa manni frísklegt og náttúrulegt útlit með því að næra og litaleiðrétta húðina. Origins GinZing SPF 40 litaða dagkremið hefur á undanförnum mánuðunum gjörsamlega rokið úr hillunum okkar og var því hin fullkomna vara í NEXT LEVEL Beautyboxið. Ef […]

Undraefnið C-Vítamín og af hverju þú ættir að bæta því í húðrútínuna þína

Okkur langaði svo að kynna fyrir ykkur ofurefnið C-vítamín í NEXT LEVEL Beautyboxinu okkar og þá sérstaklega þar sem það var Retinol frá Elizabeth Arden í því líka. En að nota C-vítamín á morgnanna og Retinol á kvöldin er talin algjör bomba í baráttu við ótímabærri öldrun húðarinnar. Því vorum við ótrúlega glöð að fá […]

7x meiri raki með Sensai Absolute Silk

Ó hvað við vorum glöð þegar við fengum Sensai Absolute Silk Kremið í boxið okkar en þessi dásemd bættist við aðeins á síðustu dögum og setti klárlega punktinn yfir i-ið á NEXT LEVEL Beautyboxinu okkar. Það sem við höfum komist að eftir að við tókum Sensai inn til okkar er að allt of fáir vita […]

Hvað er Retinol og af hverju var Elizabeth Arden Retinol í NEXT LEVEL Beautyboxinu okkar?

Þeir sem fylgjast vel með hafa kannski heyrt talað um Retinol áður en ekki þorað að prófa né séð ástæðu fyrir því að bæta við enn einni vöru í húðrútínuna sína. En ef það er eitthvað innihaldsefni sem er MAGNAÐ þá er það Retinol sem er klíníska nafnið á A vítamíni. Elizabeth Arden Retinol serumið […]

Ethique – byltingarkennt merki í kubbaformi – sem virkar!

Ef það er eitthvað sem okkur finnst gaman að gera með Beautyboxunum okkar þá er það að kynna ykkur fyrir nýjum merkjum og leyfa ykkur að prófa vörur sem eru byltingarkenndar og öðruvísi. Við vorum því einstaklega ánægð þegar nýsjálenska merkið Ethique vildi vera í NEXT LEVEL Beautyboxinu okkar. Ég viðurkenni það fúslega að upp […]

Sumarleg og falleg förðun með Maybelline – nýjasta förðunarmerkinu okkar

Maybelline er mest selda förðunarvörumerki í heiminum og býður uppá fallegar förðunarvörur sem eru aðgengilegar fyrir alla. Í tilefni þess að Maybelline er nú fáanlegt á Beautybox.is ákváðum við að gera létta sumarförðun með Maybelline vörum í nýjustu sýnikennslunni. Kaupauki fylgir ef verslaðar eru 2 eða fleiri vörur frá Maybelline – en þá fylgja með […]

Sensai Bronzing Gelið notað á 4 vegu

Bronzing Gel er vinsælasta vara Sensai (og Beautybox.is) og það kemur sko ekki á óvart. Bronzing gelið er litað gel sem veitir raka og ljóma, það gefur þér hið fullkomna sólkyssta útlit og er hægt að nota gelið á ýmsa vegu. Við ákváðum að taka saman nokkrar leiðir til að nota gelið og sýna ykkur […]

Þykkara hár á 10 sekúndum með Nanogen hártrefjunum

Í nýjustu sýnikennslunni okkar sýnum við hvernig hægt er að nota Nanogen Hair hártrefjana til að láta hárið virka þykkara og heilbrigðara. Það getur verið einstaklega viðkvæmt þegar við fáum hárlos eða hárið fer að þynnast. Algengt er að konur fái hárlos eftir meðgöngu, þynningu í kollvikum og framarlega í hliðunum. Á meðgöngu margfaldast kvenhormónarnir í […]

Hver er munurinn á rakakremi, dagkremi og næturkremi?

Í frumskógi snyrtivaranna er ekki nema von að við höfum fengið þessa spurningu oft. Því er löngu kominn tími á blogg sem að útskýrir hver munurinn er á rakakremum, dagkremum og næturkremum og af hverju við ættum að vera að pæla í þessu. Er ekki bara eitt krem nóg? Eða er þess virði að eiga […]

Augabrúna sýnikennsla

Í sýnikennslu vikunnar fórum við yfir þrjár leiðir til að fylla í augabrúnirnar.  Fyrsta leiðin er góð fyrir þær sem vilja ekki hafa of mótaðar augabrúnir en vilja samt sem áður fylla aðeins inní þær. Við notuðum augabrúnablýant frá Sensai í litnum Taupe Brown. Til að fá látlausan lit í augabrúnirnar þá strjúkum við pennanum […]

Soft Halo förðun

Í sýnikennslu vikunnar gerðum við skemmtilega halo förðun Við sýndum ákveðna aðferð við augnförðun, að nota augnblýant til að búa til lögunina sem við viljum og svo augnskugga yfir. Mikilvægt er að nota augnskuggagrunn sem er ekki of þurr þegar þessi aðferð er notuð, til að auðvelda það að dreifa úr augnblýantinum. Einnig er mikilvægt […]

Rakadropar sem gefa hárinu extra rakabúst.

Við áttum alltaf eftir að spjalla um Miracle Drops hármaskana frá John Frieda sem að ruku út hjá okkur fyrir jólin eftir að þeir voru í Rakabombu Beautyboxinu. Miracle drops maskarnir eru einstaklega þægilegir þar sem þeir koma í litlum einingum og er því frábær vara fyrir þær sem að vilja prófa og læra að […]

Af hverju er húðin þurr og pirruð í kuldanum?

Hver kannast ekki við það að húðin fari í algjört rugl í köldu veðri? Hún verður þurr, pirruð, rauð og allt í einu þó svo að hún sé að skrælna þá myndast samt bólur.. hversu ósanngjarnt er það til að toppa allt. Það sem getur gerst í köldu veðrið er að ysta lagið á húðinni […]

Förðun fyrir húð með rósroða

Við fáum rosalega oft spurningar hvaða farðar henta húð með rósroða svo við  fórum vandlega yfir vörurnar okkar og báðum Ingunni okkar um að gera sýnikennslu og skrifa þetta flotta blogg 🙂 vonandi kunnið þið vel að meta. Þetta blogg er aðeins með förðunaráð en ekki lækningu á rósroða. Ef þú heldur að þú sért […]

Lífs elexírinn – Estée Lauder Advanced Night Repair

Í tilefni Estée Lauder daga og því að við vorum svo heppin að Advanced Night Repair serumið var í jólaboxinu ætlum við að tala almennilega um lífs elexírinn, eins og vinkona okkar Guðrún Veiga kallar hann og segja ykkur aðeins frá sögu Estée Lauder. Estée Lauder vörurnar getur þú skoðað og verslað HÉR. Josephine Esther […]

Eyeliner – sýnikennsla

Í sýnikennslu vikunnar fórum við ítarlega í blautan eyeliner. Það er mikilvægt að nota augnskuggagrunn áður en þú setur eyeliner. Þá sérstaklega ef þú ert með olíukennd augnlok, annars getur augnförðunin farið að renna til. Augnskuggagrunnurinn sem við notuðum var Sensai Eye Lid Base, hann veitir ljóma og passar að augnförðunin haldist falleg. Eyelinerinn sem […]

10 mest seldu vörurnar árið 2019

Jæja það er kominn tími til að taka saman árið 😊 og ætlum við að fara yfir vinsælustu vörurnar okkar árið 2019. Þeir sem hafa áhuga á geta skoðað vinsælustu vörurnar okkar frá upphafi hér: https://beautybox.is/top-50/ Beautyboxin okkar eru mest seldu vörurnar okkar og gætum við ekki verið stoltari af þeim. Smelltu HÉR  til að […]

Hátíðarförðun

Desember er genginn í garð og við erum í hátíðarskapi. Sýnikennsla vikunnar sýnir hátíðarförðun með fallegum rauðum vörum. Fyrir húðina notuðum við Sensai Glowing Base, farðagrunnur með perlukenndum lit. Þessi farðagrunnur leiðréttir húðlit og veitir fallegan ljóma. Hægt er að bera farðagrunninn á með höndunum eða með bursta. Þegar við notum ljómandi farðagrunn undir farða […]

Ljómaserum frá ljóma merki!

Það fyrsta sem kemur í hugan þegar við tölum um snyrtivörumerkið BECCA er LJÓMI, ljómi og meiri ljómi! En ef BECCA er þekkt fyrir eitthvað þá er það að gefa út fallegar og ljómandi förðunarvörur úr góðum innihaldsefnum. Becca var stofnað árið 2001 í Ástralíu en merkið gjörsamlega sprakk út árið 2015 þegar Jacklyn Hill […]

Mjúkir fætur með Baby Foot rakamaskanum

Svona rétt áður en Jóla Beautyboxið okkar kemur út þá ætlum við að klára að fara yfir vörurnar sem voru í Rakabombu Beautyboxinu – enda kominn tími til! En þeir sem voru svo heppnir að næla sér í Rakabomu Beautyboxið fengu einmitt rakafótamaska frá Baby Foot í boxinu. Fæturnir eru oft þeir hluti líkamans sem […]

Sterkir litir – sýnikennsla

Í nýjustu sýnikennslunni sýndum við skemmtilegt 80’s lúkk með sterkum litum. Sýnikennslan var gerði í samstarfi við MS þar sem að 85 ballið er á fimmtudaginn, en allir þeir sem að vilja læra að nota sterka liti í förðun ættu að geta dregið góð ráð frá sýnikennslunni.   Við notuðum pallettuna L.A. Cover Shot frá […]

Rakamaskinn sem bjargar húðinni

Jæja nú er kominn tími til að fara almennilega í gegn um vörurnar sem voru í Rakabombu boxinu okkar og langar okkur að byrja á Origins Drink Up Intensive næturmaskanum sem að hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá okkur. Gleðin var mikil þegar Drink Up maskinn var staðfestur í boxið enda hefur hann verið […]

Kvöldförðun – sýnikennsla

Í sýnikennslu vikunnar fékk ég hana Margréti Thelmu til mín og við vildum bara ýta aðeins undir fegurð hennar með fallegri kvöldförðun.     Við lögðum áherslu á fallega húð með ekki of mikilli þekju og völdum því Estée Lauder Daywear, litaða dagkremið, í staðin fyrir meik. Þetta dagkrem aðlagar sig að þínum húðlit og […]

Húðumhirðu ráð fyrir unglinga – eða þá sem eru að byrja :)

Við fengum fyrirspurn um að gera sýnikennslu þar sem við förum yfir húðumhirðu ráð fyrir unglinga en hver sem er sem er nýr í þessum efnum getur nýtt sér ráðin hér í blogginu:) *** Það er svo mikilvægt að þrífa húðina, þrátt fyrir það að þú farðir þig ekki þá leynast óhreinindi í umhverfinu sem […]

Bólur, sem eru ekki bólur! Virkar ekkert? – Lestu færsluna

Við fáum svo ótrúlega margar fyrirspurnir frá ykkur um húðvandamál og við metum það mikils að þið treystið okkur fyrir þeim spurningum. Við skiljum það vel því að oft getur því verið gott að leita sér ráða á netinu í stað þess að mæta í verslun þar sem einhver grandskoðar á manni húðina og gefur […]

Snöggt húðdekur fyrir kvöldförðun

Í sýnikennslu vikunnar fórum við yfir nokkur skref til þess að hreinsa húðina eftir daginn og undirbúa hana fyrir kvöldförðun til þess að húðin sé extra flott og rakamikið ef þú ert að fara eitthvað extra fínt.   Nadía kom til mín með litað dagkrem og sólarpúður sem hún hafði verið með yfir allan daginn. […]

Face Halo – Byltingarkenndur farðahreinsir sem þrífur allt af – aðeins með vatni.

Face Halo er nýjasta viðbótin hjá Beautybox vefverslun. Face Halo er ástralskt merki en framleiðslan fer fram í  Suður Kóreu. Á þessum tveimur árum sem Face Halo hefur verið í sölu hefur það unnið til ýmsa verðlauna og verið notað af frægum förðunarfræðingum. Andlit Face Halo er einmitt YouTube förðunarstjarnan, Chloe Morello. Sjálfbærni er í […]

Af hverju er hárlos algengt eftir meðgöngu? Og hvað er því til ráða.

Áður en ég deili með ykkur upplýsingum sem ég dró meðal annars upp úr grein frá Karen Elvu Smáradóttir vörumerkjastjóri Nanogen langar mig að dásama Nanogen vörurnar og segja ykkur stuttlega frá minni reynslu af þeim. Þrátt fyrir að vera ekki nýbökuð móðir þá hef ég notað Nanogen síðan að við tókum vörurnar í sölu […]

Kannt þú að nota Beautyblender? sýnikennsla

Í nýjustu sýnikennslunni sýnir Ingun Sig ykkur hvernig hægt er að nota beautyblender og mælum við með því að horfa á myndbandið hér fyrir ofan og lesa textann fyrir frekari leiðbeiningar.    Fyrsta skrefið er að bleyta beautyblenderinn vel og kreista svo mesta vatnið úr honum, hægt er að nota þvottapoka til að kreista hann […]

Sýnikennsla fyrir sólkyssta húð – C-Pop dagar

Í nýjustu sýnikennslunni sýnir Ingunn Sig hvernig er hægt að nota nýjustu limited edition línuna frá Becca – C-POP. Afsláttarkóðinn C-POP gefur 25% afslátt af línunni út 12. september. *** Fyrir afmælislínu Becca var vinsælasta varan þeirra ljómapúrið Champagne Pop ljómapúðrið, útfært í fimm vörum. Púður í bæði föstu og lausu formi, silkidropar, líkamsstifti og […]

Dramatísk augnförðun

Í vikunni ákvað ég að sýna örlítið dramatískt lúkk á Kristínu Svabo. Ég byrjaði á því að blása hárið upp úr L’oréal Stylista #Blowdry efninu. Til að fá ennþá meiri lyftingu við andlitið og í hnakkann setti ég smá af L’oréal Stylista #Shorthair gelið í rakt hárið og kláraði blásturinn. Augnkremið Estée Lauder Advanced Night […]

Afmælisförðun Beautybox.is

Við áttum 2 ára afmæli 17. ágúst og trúum við varla hvað tíminn hefur liðið hratt – en bíðið bara við erum rétt að byrja 🙂 **************** Fyrir afmælisviku Beautybox ákvað ég að gera matta smokey augnförðun. Þar sem Ellen  vinnur sem flugfreyja og er með frekar þurra húð ákvað ég að byrja á því […]

Förðunarráð fyrir dömur gleraugu

Í nýjustu sýnikennslunni förum við yfir nokkuð förðunarráð fyrir þá sem nota gleraugu. Það er að sjálfsögðu engin ein förðun sem hentar öllum gleraugum, það fer eftir persónuleika, augnumgjörð, gleraugum og margt fleira en hér eru nokkur ráð sem gætu hjálpað ykkur að draga fram það besta í ykkar fari. Fyrst og fremst er gott […]

Hvernig virkar eiginlega sjálfbrúnka? Allt um TAN ! #Sjálfbrúnka101

Eins og við höfum talað um áður þá hugsum við vel um húðina okkar á þessum bæ og í stað þess að steikja hana í sólinni þá elskum við góða sólarvörn og góða sjálfbrúnku. Við vorum svo heppin að ein okkar uppáhalds sjálfbrúnka var í Sumpartý boxinu okkar en það var St. Tropez Express froðan […]

Förðun með StylPro burstasettinu

Í sýnikennslu vikunnar sýni ég hvernig hægt er að nota nýja fallega burstasettið frá Stylpro. Burstasettið inniheldur átta bursta, fullkomið bæði sem byrjunarsett eða viðbót í burstasafnið. Mér finnst ávallt mikilvægt að undirbúa húðina vel fyrir hverja förðun og byrjaði ég því á að nota My Clarins Mattifying Cream, dagkrem sem gefur húðinni góðan raka […]

Náttúruleg förðun fyrir verslunarmannahelgina

Í sýnikennslu vikunnar ákvað ég að velja nokkrar vörur sem gefa frísklegt náttúrulegt lúkk fyrir verslunarmannahelgina. *Afsláttarkóðinn VERSLO gefur þér 20% afslátt af vörunum sem notaðar voru í sýnikennslunni út miðvikudaginn 7. ágúst. Fyrsta sem ég gerði var að spreyja L’oréal Stylista Beach Wave spreyjinu í hárið á Guðbjörgu, næst gerði ég fasta fléttu í […]

Brúðarförðun Vol II – sýnikennsla og ráð

Í nýjustu sýnikennslunni okkar sýnir Ingunn Sig brúðarförðun á Marín Möndu sem var algjör hetja að mæta til okkar 2 vikum fyrir settan dag. Það er einstaklega mikilvægt að undirbúa húðina vel og nota góð krem fyrir stóra daginn. Ég notaði L’oréal Age Perfect Cell Renaissance dagkremið. Þetta krem veitir húðinni góðan raka, ver húðina […]

Eyeliner sýnikennsla og sólkysst húð

Fyrir sýnikennslu vikunnar ákvað ég að sýna létta sólkyssta húð og brúnan eyeliner. Ég byrja á því að undirbúa húðina með Nip+Fab Teen Skin Salicylic Acid Day Pads, þetta eru bómullarskífur sem jafna yfirborð húðarinnar, draga í sig alla umfram olíu og veita raka. Ég strýk yfir andltiið með einni skífu og set svo rakagefandi […]

Hvernig þú getur farðað af þér nokkur ár 😊 – yngjandi förðunarráð.

Við erum heppnar að fá að eldast 😊 og að sjálfsögðu eldumst við allar eins og eðalvín og verðum betri með hverju árinu. En með aldrinum breytumst við líka og þurfum við því stundum að endurhugsa og breyta okkar förðunar venjum til þess að ná að draga fram það besta í okkar útliti. Bloggið er […]

Frá fegurðardís yfir í kvikmyndastjörnu – hvernig Ingunn Sig dregur enn betur fram fegurð Önnu Maríu – sýnikennsla.

Í nýjustu sýnikennslunni okkar sýnir Ingunn Sig hvernig hún dregur enn betur fram fegurð Önnu Maríu og sýnir okkur hvernig við getum tekið kvöldförðunina okkar á næsta level 🙂 Hér á eftir segir hún ykkur betur frá hvernig og af hverju og neðst eru svo vörurnar sem hún notaði. **** Fyrir sýnikennslu vikunnar bað ég […]

Ferskjulituð augnförðun – sýnikennsla

Í sýnikennslu vikunnar ákvað ég að gera frísklega húð og litaglaða augnförðun með fallegu Smashbox LA Cover Shoot pallettunni. Í sýnikennslu vikunnar ákvað ég að gera frísklega húð og litaglaða augnförðun með fallegu Smashbox LA Cover Shoot pallettunni. Mér finnst undirbúningur húðarinnar ávalt vera það mikilvægasta fyrir hverja förðun, ég ákvað að nota Nip+Fab Kale […]

Brúðarförðun – hvað er mikilvægt að hafa í huga?

Ingunn Sig gerði þessa fallegu brúðarförðun og í þessu bloggi fer hún betur yfir hvað hún gerði og af hverju 🙂 Mælum með að lesa. Förðun og umsjón Ingunn Sig Módel: Dísa Pétursdóttir Húðin er það mikilvægasta þegar kemur að brúðarförðun og er því mikilvægt að undirbúa hana einkar vel fyrir þennan stóra dag. Glamglow […]

Ávaxtasýru skífur! Hvernig á að nota þær og af hverju?

Við ætlum að byrja að fara yfir vörurnar sem voru í Sumarpartý Beautyboxinu okkar sem kom út í byrjun mánaðar og fyrstu vörurnar sem okkur langar að kynna fyrir ykkur eru Nip+Fab ávaxtasýruskífurnar og primer maskinn sem voru í boxinu. Ávaxtasýrur Ávaxtasýrur hafa verið áberandi í húðumhirðu umræðunni á síðustu árum og þeir sem fylgjast […]

StylPro sýnikennsla – 22 hreinir og þurrir burstar á nokkrum mínútum.

Ef þið eruð forvitin um StylPro græjunar þá mælum við með því að kíkja á myndbandið hér fyrir neðan þar sem Ingunn Sigurðardóttir sýnir ykkur hvernig þær og hreinsivökvinn virka. Mælum einnig með að kíkja á þetta blogg hér: https://beautybox.is/stylpro-hreinir-og-thurrir-fordunarburstar-a-30-sek/ ef þið viljið vita meira um af hverju það er mikilvægt að þrífa burstana ykkar […]

Uppáhalds maskarinn þinn – á sterum?

Maskarar eru ein mest notaðasta förðunarvaran í heiminum og eigum við það flestar sameiginlegt að þó svo við málum okkur ekkert mikið, eða kunnum ekkert of vel á allar þessar förðunarnýjungar þá er maskari samt alltaf klassískur og kunnum við flestar að skella honum á. En við erum líka eins mismunandi og við erum margar […]

StylPro – hreinir og ÞURRIR förðunarburstar á 30 sek?!

Við höfum áður skrifað blogg um það hversu mikilvægt það er að þrífa förðunarburstana okkar en þetta er málefni sem að við höfum sérstakan áhuga á. Förðunarburstar eru gróðrarstía fyrir bakteríur, og þá sérstaklega þeir sem við notum í blautar vörur svosem farða. Við fáum ótal spurningar um húðumhirðu, en hver er tilgangurinn í að […]

Hvað er serum og til hvers er það notað?

Ein algengasta spurningin sem við fáum hér á Beautybox.is er: Hvað er eiginlega serum? Til hvers ætti maður að nota það? Svo ef þú ert að velta þessu fyrir þér þá ert þú svo sannarlega ekki ein – þar af leiðandi báðum við Margréti um að skrifa blogg fyrir okkur sem að útskýrir hvað „þetta […]

Hvernig farðagrunnur hentar þér best?

Við höldum áfram að fara yfir vörurnar í #bakviðtjöldin Beautyboxinu og nú ætlum við að segja ykkur betur frá Becca First Light farðagrunninum sem var í boxinu og er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þegar að við völdum vörunar í #bakviðtjöldið Beautyboxið okkar fannst okkur mjög mikilvægt að hafa farðagrunn í boxinu þar sem að […]

Fermingar hár og förðun

Ingunn Sig fékk frænku sína hana Kolbrúnu Birnu Burrell fermingarstelpu til þess að vera módel fyrir okkur. Við vijum taka það fram að fermingarstelpur þurfa að sjálfsögðu alls ekki að mála sig frekar en foreldrar leyfa og þær vilja, en fermingardagurinn er oft sá dagur sem að stelpur fá að farða sig í fyrsta skipti […]

Snyrtivörur á meðgöngu – hvað má nota og hvað skal forðast?

Á meðgöngu þarf að aðlaga sig að ýmsum hlutum til að hlífa litlu kríli sem vex og dafnar, t.d. með breyttu matarræði og drekka ekki áfengi. En það eru líka ákveðin innihaldsefni í snyrtivörum sem þarf að athuga með á meðgöngu. Sum innihaldsefni er best að hætta að nota en önnur innihaldsefni skal vara sig […]

Byltingarkennt andlitsvatn sem gefur frísklegt útlit.

Við höldum áfram að fara yfir vörurnar sem voru í #bakviðtjöldin Beautyboxinu okkar og næst ætlum við að segja ykkur af hverju við völdum St. Tropez Self Tan Purity Bronzing andlitsvatnið. Nú þegar við erum búin að fara yfir það af hverju sólarvörn sé það mikilvægasta í húðrútínunni þinni (hægt að lesa HÉR) þá verðum […]

Hvernig finn ég minn fullkomna rauða varalit?

Það getur verið erfitt að finna hinn fullkomna rauða varalit fyrir sig. Margir eru hræddir við að setja á sig rauðan varalit meðan sumir virðast ekki fara út án hans. Ég veit um margar sem hafa reynt að finna sinn besta lit en finnst það erfitt og vita ekki að hverju skal leita. Ég hef […]

Það besta sem þú getur gert til þess að sporna við ótímabærri öldrun húðarinnar!!

Sólarvörn er það BESTA sem þú getur gert fyrir húðina þína, viljir þú sporna við ótímabærri öldrun hennar. En það er ekki alveg sama hvaða sólarvörn það er, heldur þarf sólarvörnin að innihalda bæði UVA og UVB vörn. Okkur langar að þið skiljið af hverju við ættum að nota sólarvörn daglega. Ég ætla að hafa […]

#Bakviðtjöldin Beautyboxið

Hugmyndin af #bakviðtjöldin Beautyboxinu kviknaði út frá algengum spurningum sem við fáum frá ykkur. Hvernig á að nota primer? hvað er besta sem ég get gert til að koma í veg fyrir ótímanbæra öldrun húðarinnar? Af hverju slitnar hárið mitt svona? Hvað er eiginlega maskara primer? og hvernig get litið ferskari út?  Svarið við öllum […]

Bjútítips sem þú ættir EKKI að fylgja!

Bjútítips sem maður rekst á eru misgóð. Sum virka frábærlega en önnur ekki neitt og sumum geta hreinlega verið slæmt að fara eftir. Í gegnum tíðina hef ég prófað og komist að mörgum góðum ráðum sem ég hef t.d. deilt með ykkur HÉR, en nú vil ég deila með ykkur hvaða ráðum er best að […]

Beauty förðun með Bobbi Brown Rose Nude og laus fiskiflétta – Sýnikennsla

Við erum ótrúlega stolt að kynna ykkur fyrir nýjasta meðliminn í Beautybox.is fjölskyldunni hana Ingunni Sig sem ætlar að gera fyrir okkur vikulegar sýnikennslur. Sýnikennslurnar birtast fyrst á Instagram og á Instagram story og koma svo hér inn á með link á allar vörurnar 🙂 Við ætlum ekki að hafa þetta mikið lengra heldur bara […]

Hver er munurinn á anti-aging vörum og vörum fyrir þroskaða húð?

Það er algengur misskilningur að halda að vörur sem eru merktar sem “Anti aging” séu aðeins fyrir þroskaða húð.  Anti aging þýðir nefnilega andstæða öldrunar og er því mikilvægasti punkturinn: Að fyrirbyggja er miklu betra og auðveldara en að laga og taka til baka. Anti aging vörur eru því sérstaklega hannaðar til þess að fyrirbyggja […]

Hátíðar Beautyboxið

Við erum svo ótrúlega stolt af nýjasta Beautyboxinu okkar sem er með hátíðar og gull þema. Fyrsta Beautyboxið okkar kom út í desember í fyrra og við gætum ekki verið þakklátari fyrir viðtökurnar frá ykkur. Að búa til vöru eins og Beautyboxið þar sem við hvetjum ykkur til þess að dekra við ykkur sjálfar er […]

Þú getur líka notað snyrtivörurnar þínar til að gera þetta –

Það er hægt að nota svo margar snyrtivörur á annan hátt en þeim er ætlað. Ég hef tekið saman hér að neðan mínar uppáhalds hugmyndir um hvernig er hægt að nýta snyrtivörur á annan hátt. Ef þið vitið um fleiri leiðir til þess að nota snyrtivörur á óhefðbundinn hátt megið þið endilega deila þeim með […]

Primer: Það MIKILVÆGASTA í snyrtibuddunni. Sjáðu af hverju!

 Margar konur sem ég farða segjast aldrei eða sjaldan nota farðagrunn, eða primer eins og hann er stundum kallaður. Margar segjast ekki alveg skilja hvað farðagrunnur gerir eða hvernig á að nota hann, og vilja bara halda sig við sína förðunar rútínu og finnst farðagrunnur óþarfi.  „Primer“ þýðir í raun bara grunnur og skal hann […]

Hvernig á að ná fullkominni húð með förðunarsvamp?

Eitt heitasta trendið síðustu ár hefur verið að nota svampa, eins og t.d. Beautyblender og Miracle complexion frá Real Techniques, við förðun og hefur það trend algjörlega tekið yfir í förðunarheiminum. Þið hafið eflaust flest heyrt um þessa aðferð og gætuð jafnvel verið að nota hana sjálf. Hins vegar fæ ég reglulega spurningar um hvernig […]

Hvort þrífur þú húðina fyrir eða eftir hreyfingu?

Við lögðum fram spurninguna – „Hvort þrífið þið húðina ykkar fyrir eða eftir hreyfingu?“ á Instagram story í vikunni og niðurstöðurnar voru nokkuð merkilegar. 75% af þeim sem að svöruðu sögðust þrífa húðina eftir ræktina og 25% fyrir, en nokkrir sendu okkur skilaboð og sögðust gera bæði. Okkur fannst niðurstöðurnar mjög áhugaverðar og það hvatti […]

Af hverju ætti ég að bera á mig augnkrem?

Get ég ekki alveg eins notað andlitskremið mitt? Ég viðurkenni að þetta er hlutur sem ég er búin að hugsa um lengi. Æj af hverju ætti ég að vera að splæsa í einhverja pínu litla túpu af kremi, þegar ég get bara smellt andlitskreminu á allt andlitið og augun líka. En því meira sem ég […]

Hvenær renna snyrtivörur út og af hverju þarf að henda þeim?

Manstu hvenær byrjaðir þú að nota maskarann þinn? Eða hvenær þú keyptir þér nýtt púður? Við eigum það til að geyma snyrtivörur alltof lengi – og það getur verið hættulegt. Við gætum fundið eitthvað inn í skáp og munum ekkert hvenær við opnuðum það. Málið er að allar snyrtivörur renna út – og oft fyrr […]

RapidRenew kornaskrúbbur í Sumar Beautyboxinu

Húðin okkar er alltaf að vinna. Á hverri mínútu deyja um 30.000 til 40.000 dauðar húðfrumur og undir þeim myndast nýjar húðfrumur. Húðin okkar getur átt erfitt með að með að losa sig við dauðu húðfrumurnar og verður þá yfirborð húðarinnar hrjúft, þurrt og líflaust. Ekki nóg með það heldur geta hár vaxið undir dauðu […]

Húðsnapparinn Ylfa Soussa prófaði allt áður en hún las sig til um fræðina á bak við húðumhirðu: Svaf með límband á bólunum, tannkrem, þykka drullu sem hún hnoðaði úr Lux sápustykki.

Fyrir og eftir mynd af Ylfu Pétursdóttur Soussa. Hver er Ylfa Húðsnappari? Ég er 42 ára 4 barna húsmóðir í New York og húðperri/húðvöruáhugamanneskja (á sterum) í hjáverkum. Ég er Árbæingur, elst af 5 systrum, (frægu Pétursdætturnar, pabbi okkar Iron-Pétur í Kók). En án gríns þá er ég búin að eiga í vandræðum með húðina […]

Mádara (*nýtt*) í Sumar Beautyboxinu

Við kynnum með stolti nýtt merki á Beautybox.is – Mádara ! Mádara húðvörurnar eru margverðlaunaðar og trúa stofnendur merkisins að með því að nota hrein, náttúruleg og virk innihaldsefni geta vörurnar hjálpað okkur að líða betur bæði að utan sem innan. Allar vörurnar frá Mádara eru með Ecocert vottun sem að þýðir að þær eru […]

Hugmyndir að brúðarförðun

Brúðarförðunin er ein mikilvægasta förðun ævinnar – ef ekki sú allra mikilvægasta. Á brúðardeginum eru teknar ótal myndir og maður eyðir deginum með öllum sínum nánustu. Allar viljum við líta sem best út á þessum mikilvæga degi – en hvernig á maður að velja förðunina fyrir daginn? Hver einasta brúðarförðun er einstök þó að farðanirnar […]

Baby Foot – mín reynsla – varúð myndir ekki fyrir viðkvæma!

Ef þið hafið ekki prófað Baby foot þá verðið þið að prófa – sérstaklega núna fyrir sumarið! Baby Foot var í mars Beautyboxinu og er öflug fótameðferð sem er einskonar gel með 16 innihaldsefnum. Innihaldsefnin leysa upp dautt skinn á fótunum og lætur það flagna af þannig að maður fær mjúka og fallega fætur eftir […]

Glamglow maskarnir – hvaða maski hentar þér best?

Glamglow maskarnir hafa heldur betur slegið í gegn enda hágæða vörur sem að skila árangri strax.  Glamglow varð til í Hollywood þegar að hjónin Shannon og Glenn Dellimore veltu því fyrir sér hvort það væri hægt að búa til snyrtivörur sem að gera húðina tilbúna fyrir myndatökur á nokkrum mínútum. Upprunnalega gáfu þau og seldu […]

Hin umtalaða kóreska húðrútína – 10 skref að fullkominni húð

Kóresk húðrútína hefur tekið yfir með stormi undafarin ár hér á Vesturlöndum og fengið gífurlegar vinsældir. Enda ekki skrýtið þar sem kóreskar húðvörur eru þekktar fyrir að vera ótrúlega góðar og innihalda góð innihaldsefni. En hvað felur þessi húðumhirða eiginlega í sér og er hún eitthvað öðruvísi en venjuleg húðrútína? Austur Asíulöndin hafa tekið fram […]

Ávaxtasýrur á húðina – virka þær?

Vinsældir ávaxtasýra í húðvörum hafa stóraukist á undaförnum árum og rannsóknir komið fram sem sýna skilvirkni þeirra fyrir betri húð en hinsvegar eru margir sem vita ekki hver tilgangur þeirra er eða hvernig sé best að nota þær. Margir velta einnig fyrir sér hvaða gagn þær gera og hvernig þær virka fyrir húðina.   Með […]

Hvernig get ég málað mig sjálf meira eins og atvinnu förðunarfræðingur?

Að fara í förðun er algjör lúxus og gerir mun auðveldara að finna sig til fyrir ákveðið tilefni. Förðunin kemur einnig mun betur út á myndum og svo er bara svo ótrúlega þægilegt að láta mála sig. En flestar konur splæsa í förðun hjá förðunarfræðingi fyrir eitthvað sérstakt tilefni en ekki í hvert skipti sem […]

Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um snyrtivörur

Okkur finnst alltaf gaman að lesa um snyrtivörur svo við tókum saman nokkrar skemmtilegar staðreyndir. Estee Lauder er sögð hafa misst ilmvatnið sitt „óvart“ í miðri stórverslun verslun á háannatíma. Konunum í búðinni líkaði ilmurinn svo vel að þær komu upp að henni og spurðu hana um ilminn. Þannig náði hún sér í fyrstu kúnnana. […]

20 Beauty trikk sem þú þarft að vita!

Margrét Magnúsdóttir tók saman sín uppáhalds beauty trikk. Berðu á þig eina umferð af maskara og leyfðu honum að þorna aðeins. Berðu svo aðra umferð, en rétt áður en hann þornar ýttu hárunum upp með maskaragreiðunni. Með því að ýta hárunum upp þegar þau eru aðeins þornuð þá krullast þau margfalt og haldast þannig allann […]

Uppáhalds beauty tipsin ykkar😊

Förðunarfræðingurinn Fanney Dóra sem að heldur úti snappinu @Fanneydorav tók þeirri áskorun að mála sig á hverjum degi 12 daga fyrir jól. Verkefnið gerir hún í samstarfi við hin ýmsu förðunarmerki eða verslanir og það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með henni. Mánudaginn 18. desember var hún í samstarfi með okkur og gerði mjög […]

Hvað leyndist í fyrsta Beautyboxinu?

**Eins og komið hefur fram áður þá átti Beautybox.is upphaflega að vera mánaðarlegt snyrtivörubox en hugmyndin breyttist og þróaðist og þann 17. ágúst opnuðum við netverslunina beautybox.is með 21 vörumerki. Vörumerkin eru nú orðin 26 og bætist ört í hópinn. Við höldum samt enn í upprunnalegu hugmyndina en nú gefum við út 4 Beautybox á […]

Algeng beauty-mistök sem þú gætir verið að gera!

Í þessari grein tala ég um algeng mistök þegar kemur að förðun, húðumhirðu og hári. Gæti verið að þú sért að gera eitthvað af þeim? Það er allavega ekkert mál að laga þau. Þú gleymir að hugsa um hálsinn Þú notar góðar húðvörur á andlitið til að koma í veg fyrir fínar línur og viðhalda […]

Hvenær þreifst þú burstana þína síðast?

Í síðustu viku deildum við mynd á samfélagsmiðlum sem að sagði frá því að í nýlegri könnun kom fram að 72% af konum þrífa aldrei farða burstana sína. Í sömu könnun voru tekin sýni af burstum sem að höfðu ekki verið þvegnir í mánuð, og fundust í þeim 8 tegundir af vondum bakteríum! Myndin vakti […]

Náttúrulega falleg brúnka í vetur – möst frá St Tropez!

Nú þegar veturinn er á næsta leiti þá finnst mér nauðsynlegt að fríska uppá útlitið með fallegri brúnku. Þegar sólin hættir að skína þá missir húðin þennan ljóma og frískleika sem við fáum á sumrin með brúnku, roða í kinnum og jafnvel freknum. Áður fyrr fóru margir í ljós þegar líða tók á veturinn, en […]

Venjuleg húð

Venjuleg húð er síðasta húðtegundin sem við tökum fyrir úr seríunni “Hvernig í ósköpunum á ég að vita hvernig húðtegund ég er með”. Venjuleg húð þýðir í þessu samhengi að húðin sé í góðu jafnvægi. Venjuleg húð: Hvorki feit né mjög þurr. Slétt og þægileg. Litlar svitaholur. Getur orðið smá þurr, t.d. í köldu veðri, […]

Blönduð húð

Blönduð húð er næst síðasta húðtegundin sem við tökum fyrir úr seríunni “Hvernig í ósköpunum á ég að vita hvernig húðtegund ég er með”.Ágætt er að kynna sér einkenni feitrar húðar og þurrar húðar þar sem að húðin er auðvitað blanda af báðu, en hér fyrir neðan eru nokkur góð ráð fyrir blandaða húð. Blönduð […]

Förðun og hár: 15 hlutir sem þú verður að vita áður en þú giftir þig!

Brúðkaupsdagurinn er einn stærsti dagur lífsins og sá dagur sem flestar konur vilja líta sem best út. Líklegast er þetta sá dagur sem er mikilvægastur í lífi flestra kvenna þegar kemur að förðun og hári. Jafnvel fyrir þær konur sem mála sig aldrei eða mjög lítið, því að flestir velja brúðkaupsdaginn til þess að draga […]

Húð sem vantar raka

Í þessu bloggi ætlum að grafa aðeins dýpra ofan í húðtegundirnar sem að við töldum upp í færslunni „Hvernig í ósköpunum á ég að vita hvernig húðtegund ég er með?“  Fyrsta húðtegundin sem við ætlum að taka fyrir er húð sem vantar raka. Mikilvægt er að taka fram að húð sem vantar raka getur tilheyrt […]

Hvernig í ósköpunum á ég að vita hvernig húðtegund ég er með?

Allir sem þú þekkir eru að nota ákveðna vöru og ELSKA hana. Uppáhalds bloggarinn þinn notar hana og hún er með svo fullkomna húð að þú gætir grátið þig í svefn. Þú kaupir hana líka því að þig langar að vera með eins flotta húð og hún, prufar hana og þvílík vonbrigði! Bólur spretta upp […]