Erborian er leiðandi í þróun á litaleiðréttandi vörum og þá sérstaklega BB og CC kremum, en þeir voru fyrstir til að koma með BB krem á Evrópumarkað.

Hugmyndafræði Erborian er tekin beint úr fegurðarvenjum kóreskra kvenna en Erborian hefur einfaldað hina 10 þrepa kóresku fegrunarrútínu í 3 einföld skref DETOX – BOOST – FINISH. Vörurnar eru hannaðar með langtímaávinning húðarinnar í huga og vinna allar í átt að einu markmiði: Að fá sem fallegustu áferðina á húðina! 

Þetta er þín húð – Vertu stolt af henni!

Erborian gjafasett

Finish BB og CC krem

Með sérfræðiþekkingu og hátækni að leiðarljósi hefur Erborian þróað svokölluð Hybrid krem sem innihalda bæði virkar kóreskar jurtir sem næra og slétta húðina ásamt breytanlegum litarefnum sem aðlaga sig fullkomlega að litatón húðarinnar þegar varan er borin á. Húðin fær á sig fullkomna áferð og verður laus við litamisfellur og ójöfnur.

Finish augu

Erborian augnkremin eru sérstaklega hönnuð fyrir viðkvæmt svæði augnanna en bæði CC og BB augnkremin næra húðina og slétta ásamt því að hylja vel dökka baugu og litamisfellur sem koma á augnsvæðinu. Hybrid tækni Erborian tryggir að þú færð húðvöru og farða í einni og sömu vörunni.

Finish Farðagrunnar

Finish húð

Detox Andlitshreinsar

Fyrsta skrefið til að öðlast fallega húð er djúphreinsun. Erborian andlitshreinsarnir nýta virkni kóreskra jurta til að sigrast á mismunandi húðvandamálum en lykilatriðið er að hreinsa húðina með tvöfaldri hreinsun: Fyrst eru farði og óhreinindi hreinsuð af með olíuhreinsi en í seinna skrefinu er afgangsfarði og óhreinindi hreinsuð af með gel- eða froðuhreinsi. Með tvöfaldri hreinsun tryggir þú að húðin sé tandurhrein og móttækileg fyrir virkum efnum næstu skrefa.

Bamboo línan

Gefur raka og viðheldur jafnvægi.

Hentar best venjulegri til feitri húð og húð sem vantar raka.

Yuza línan

Veitir andoxun, styrkir og verndar.

Hentar best þurri til venjulegri húð og þeim sem vilja sporna gegn öldrun húðarinnar.

Ginseng

Endurnýjar og eykur ljóma.

Ríkulegasta línan, hentar best þeim sem vilja sporna gegn öldrun húðarinnar og þroskaðri húð.

REd Pepper

Stinnir húðina og yngir.

Hentar best líflausri og grárri húð sem þarfnast smá orkubústs.