Af hverju er húðin þurr og pirruð í kuldanum?

Hver kannast ekki við það að húðin fari í algjört rugl í köldu veðri? Hún verður þurr, pirruð, rauð og allt í einu þó svo að hún sé að skrælna þá myndast samt bólur.. hversu ósanngjarnt er það til að toppa allt.

Það sem getur gerst í köldu veðrið er að ysta lagið á húðinni okkar sem inniheldur náttúrulegar olíur og verndar húðina okkar getur raskast, með þeim afleiðingum að raki sleppur út og húðin þornar. Einnig verður hún viðkvæmari fyrir allri ertingu þar sem bakteríur eiga greiðari leið inn með þeim afleiðingum að við verðum rauð, viðkvæm, fáum bólur og jafnvel klæjar í húðina. Þessi einkenni gerast ekki bara í andlitinu okkar heldur einnig á líkamanum okkar og á vörunum.

Við vorum svo heppin leyfa ykkur að prófa Mádara Daily Defence kremið í Jóla Beautyboxinu okkar og gæti það ekki hentað betur í boxið núna í kuldanum.

Það er einmitt ástæðan fyrir því að við viljum kynna ykkur betur fyrir Mádara Daily Defence kreminu sem var í boxinu okkar. Kremið var búið til þess að vernda húðina gegn kulda, halda rakanum inn í henni og bakteríum í burtu. Daily Defence var prófað í allra verstu aðstæðum í Lapplandi í myndatöku þar sem allt krúið notaði kremið til þess vernda húðina gegn miklum kulda með miklum árangri. Kremið er einstaklega næringarríkt og leggur verndarhulu á húðina og ver hana því gegn kuldanum.

Það besta við Daily Defence er að það má nota allstaðar! Á allan líkamann, varirnar, naglaböndin, þurra hæla og hendurnar til að halda rakastigi húðarinnar í góðu lagi. Einnig er það frábært til að nota í andlitið (en í minna magni) og þá sérstaklega við vetrar útivist svo sem á skíðum eða fjallgöngunni. Og það sem gerir það enn frábærara er það má nota kremið á alla fjölskylduna – meira að segja yngstu krílin. Og að okkar mati á Daily Defence jafn mikið heima á hverju baðherbergi og gamla góða vaselínið.

Mádara vörurnar eru einnig fremst í flokki náttúrulegra húðvara en þær eru lífrænar, crulety free og 90% vegan (eins og er í okkar úrvali innihalda aðeins CC kremin þeirra hunang). Fyrir þá sem þurfa að huga að því að leita sér af glúten lausum vörum þá eru þær vel merktar hjá okkur ef þær uppfylla þau skilyrði. Við verðum einnig að gefa þeim hrós fyrir umhverfisstefnu en sem dæmi er Daily Defence kremið í túpu sem er búin til úr plöntum en ekki plasti.

Við mælum svo sannarlega með þessari dásemd og mælum svo sannarlega með að þið kynnið ykkur Mádara vörurnar betur HÉR.

One thought on “Af hverju er húðin þurr og pirruð í kuldanum?

  1. Soffia Sadouki Jónsdóttir says:

    Hvaða krem nota ég fyrir mjög þurra húð er eins og sandpappir i framan sem kostar ekki hálf nýra

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *