Partý Prepp Beautyboxið

Við kynnum með stolti Partý Prepp Beautyboxið sem seldist upp á innan við sólarhring ! Partý Prepp Beautyboxið innihélt 6 vörur sem hjálpa þér að líta og líða eins og Hollywood stjörnu á árshátíðinni, jólahlaðborðinu og hátíðardögunum fram undan. Eftir partýskort síðustu ára vitum við að mörgum langar að skarta sínu allra besta á komandi […]

Næturserum sem endurnýjar húðina á meðan þú sefur

Mádara Sleep and Peel næturserumið sem leyndist í Partý Prepp Beautyboxinu er hin fullkomna vara til þess að undirbúa húðina vel fyrir fallega förðun. Við trúum því að falleg förðun byrji á undirbúningnum, og þegar það er tilefni til þess að vera extra sætur þá er algjörlega þess virði að byrja á húðinni nokkrum dögum […]

Nokkrir dropar og þú ljómar

Við dýrkum vörur sem gefa okkur extra ljóma og smá lit, það er einfaldlega fátt sem er bústar sjálfstraustið meira en að vakna með jafnari húðlit og smá brúnku, maður er einfaldlega bara svo til í daginn, nývaknaður og ferskur. St. Tropez er hágæða sjálfbrúnkumerki með langa sögu en nýlega hafa þeir verið að uppfæra […]

Silkimjúk og rakanærð húð á meðan þú sefur

Við elskum að kynna fyrir ykkur ný merki í Beautyboxunum okkar og í Partý Prepp Beautyboxinu leyndist vara frá nýjasta húðvörumerkinu okkar Raybae. Það er að mörgu að huga þegar maður tekur inn nýtt húðvörumerki og hvað þá merki sem er frekar nýlegt á markaði og frekar óþekkt. En við vorum ekki lengi að ákveða […]

Maskarinn sem setur punktinn yfir i-ið

Flottur maskari setur alltaf punktinn yfir i-ið og því er ótrúlega gaman að leyfa ykkur að prófa frábæra maskarann frá Shiseido í Partý Prepp Beautyboxinu. Maskari er sú förðunarvara sem flestir nota á stóru dögunum og því fannst okkur tilvalið að leyfa ykkur að prófa þessa dásemd. Það er jú hægt að tala endalaust um […]

Hitavörnin frá Lee Stafford – nú með nýjum, mildari ilm

Við höfum áður skrifað um mikilvægi þess að verja hárið þegar það er mótað með hita og eins og við höfum áður sagt þá er sléttujárnið þitt nógu heitt til þess að elda mat! Svo það er eins gott að verja hárið gegn skaða. Það sem getur gerst ef þú notar ekki hitavörn er: Hárliturinn […]

Lúxúsilmvötnin sem seljast á 2 sekúndna fresti, á ótrúlegu verði.

Við elskum að kynna fyrir ykkur nýjar vörur í Beautyboxinu okkar og er í fyrsta skipti ilmvatnsprufa í boxinu frá breska ilmvatnshúsinu Milton Lloyd sem er breskt ilmvatnshús. Milton Lloyd er fjölskyldufyrirtæki í London þar sem nokkrir ættliðir vinna. Sagan þeirra heillaði okkar þrátt fyrir að við höfðum við aldrei heyrt um þetta flotta fyrirtæki […]

Tan vandræði – og hvernig á að leysa þau

Nú þegar sólin lækkar á lofti og sumarbrúnka flestra rennur af eru margir sem vilja viðhalda smá lit yfir vetrartímann. Sumum finnst þetta samt sem áður agalegt vesen og hafa lent í allskonar brúnkuslysum yfir árin – og þar á meðal við! Þess vegna tókum við saman nokkur bestu ráðin sem við höfum fengið og […]

Klínísk rannsókn á ávaxtasýruskífunum sem seljast á 2 sekúndna fresti

Við höfum ekki farið leynt með ást okkar á vísindalega rannsökuðum húðvörum – sem er einmitt það sem gerir Dr Dennis Gross vörurnar eins áhrifaríkar og þær eru. Við Beautybox-teymið fórum til Osló á námskeið í maí og lærðum enn meira um þessar frábæru vörur og vísindin á bak við þær. Dr Dennis Gross er […]

Pro Aging Beauty Tips með Sensai

Helga Kristjáns sýnir fallega förðun með unglegt yfirbragð að leiðarljósi og kennir okkur allskonar sniðug ráð. Sensai er á 20% afslætti 17-23 ágúst í tilefni 5 ára afmæli Beautybox og snyrtivöru ráðgjafi Sensai stendur vaktina með okkur í vikunni í Síðumúla 22 svo endilega kíkið í heimsókn. Til að skoða Sensai í netverslun SMELLTU HÉR […]

Hvað leyndist í Regnboga Beautyboxinu?

Regnbogaboxið fer yfir allan regnbogan af húðvörum og með þessu boxi viljum við leiðbeina ykkur að búa til ykkar eigin húðrútínu og útskýra hvert skref fyrir sig. Vörurnar í boxinu gera allt sem við þurfum, þær hreinsa, skrúbba, gefa raka, ljóma og vinna á ótímabærri öldrun húðarinnar. Þær innihalda spennandi og frábær stjörnuinnihaldsefni sem gera […]

Hvað er að tvíhreinsa húðina?

Fyrr á árinu sá ég skoðanakönnun inn í Caroline Hirons Skinfreaks grúbbunni á Facebook (sem ég mæli með fyrir alla áhugasama um húðumhirðu) þar sem ein í hópnum spurði meðlimi hvað það væri sem hefði breytt mestu fyrir húðina þeirra. En það sem var einna helst áberandi var hversu margir sögðu að tvíhreinsun húðarinnar hafi […]

Að „flysja“ húðina, eða hvað sem við eigum að kalla það

Margir segja að leyndarmálið á bak við Hollywood ljómann sé vel “skrúbbuð” húð. Aftur á móti eru margir húðsérfræðingar sem mæla eindregið á móti því að nota kornaskrúbba og hvetja frekar til notkunar ávaxtasýra eða ensíma. Vandamálið okkar er þó að okkur vantar íslenskt orð yfir „exfoliate“ því það er ekki fræðilegur möguleiki að við […]

Hver er tilgangurinn með rakavatni og tóner?

Í Regnboga Beautyboxinu leyndist Erborian YuZa Double Lotion sem er blanda af rakavatni og tóner. En hver er tilgangurinn með því að nota tóner og rakavatn og hver er munurinn?   Það er ekki svo langt síðan að flestir andlitshreinsar voru að mestu byggðir upp sem sápur og voru því mun basískari en þeir hreinsar […]

Hver er munurinn á þurri húð og rakaþurri húð?

Moisture Surge rakakremið sem leyndist í Regnboga Beautyboxinu þarf vart að kynna, en það er eitt vinsælasta rakakremið á markaðnum í dag og selst eitt stykki á hverjum sjö sekúndum í heiminum. Moisture Surge er gætt þeim kosti að það virðist henta næstum því öllum og eru þeir sem eru með rósroða oft mjög hrifnir […]

Af hverju Bakuchiol og af hverju augnkrem?

Við fáum oft spurninguna þarf ég að nota augnkrem? Stutta svarið við þessu er nei ekkert endilega, ef þú vilt ná fram ákveðinni virkni eða ert nú þegar að nota virk krem á andlitið sem mega ekki fara á augun þá er augnkrem betri kostur. Húðin í kringum augun: Er alltaf á hreyfingu Framleiðir ekki […]

Sólarvarnir alla daga, allan ársins hring!

Við getum að sjálfsögðu ekki gefið út húðumhirðu Beautybox nema að hafa sólarvörn í boxinu. En það er gaman að segja frá því að boxið var tæknilega séð tilbúið, en þegar við horfðum á það og hugsuðum aðeins betur þá vissum við einfaldlega að við urðum að fá sólarvörn í það líka.Við höfðum því samband […]

7 Skins Method – nýjasta trendið frá Kóreu

7 Skins Method eða 7 laga leiðin eins og við ætlum að kalla hana er kóreskt húðumhirðu trend sem felur í sér að setja 3-7 umferðir af rakavatni, essence, rakaspreyi eða toner (sem þurrkar ekki) á hreina húðina áður en rakakrem er sett á. Við uppgötvuðum þetta trend eftir að fylgjast með í alþjóðlegri húðgrúbbu […]

Goðsagna Beautyboxið

Goðsagna Beautyboxið innihélt 6 vörur sem eiga það sameiginlegt að vera algjörar goðsagnir. Vörurnar eru annað hvort margverðlaunaðar, metsöluvörur eða nýjar frá merkjum sem eru goðsagnir í sínum flokki. Í boxinu voru 4 förðunarvörur, 1 húðvara og 1 vara sem er blanda af báðu. Vörurnar í Goðsagna Beautyboxinu eru að andvirði 13.476 kr. Til þess […]

Þurfum við að pæla í ónæmiskerfi húðarinnar? Ultimune frá Shiseido hefur unnið yfir 200 snyrtivöruverðlaun !

Ultimune sem leyndist í Goðsagna Beautyboxinu stendur svo sannarlega undir nafni enda eru fáar snyrtivörur á markaði sem hafa unnið jafn mörg snyrtivöruverðlaun. Ultimune býr yfir 25 ára rannsóknarvinnu sem er samstarf á milli Shiseido og MGH-Harvard Cutaneous Biology Research Center. Á tímum Covid pæla margir í því að efla ónæmisvarnir líkamans. Með sterkara ónæmiskerfi […]

Maskarinn frá Maybelline sem flaug upp á toppin

 Við höfum sjaldan séð vöru rjúka jafn hratt úr hillunum um leið og hann kom í sölu og Sky High maskarinn frá Maybelline sem leyndist í Goðsagna Beautyboxinu. Sky High gerði allt gjörsamlega vitlaust á TikTok árið 2021 þar sem hann var merktur á yfir 39 milljón myndböndum en einnig vann hann Allure Beautyverðlaunin árið […]

Ljómabomba með ávaxtasýrum, C vítamíni og níasínamíð frá Glamglow

Við vitum að maskar slá alltaf í gegn í Beautyboxinu og við meira að segja fengið kvartanir í þau fáu skipti sem það hefur ekki verið maski í boxinu 😊 og það er eitthvað merki sem er goðsögn í maskaheiminum þá er það Glamglow. Því er mjög skemmtilegt að fá að prófa nýjasta maskann þeirra […]

Mest seldu vörurnar árið 2021 – vinsælustu nýjungar 2021 og vonarstjörnur 2022

Það er að mörgu að huga ef maður ætlar að gera sanngjarnan og sannan snyrtivöruvinsældalista. Það er jú ekkert mál að kíkja á sölutölur einstakra vara og sjá að mest selda vara ársins 2021 var Lash Volumizer frá Sensai. Aftur á móti ef við teljum saman Bronzing Gelið í öllum 3 litunum þá á það […]

Nýtt SENSAI förðunarmyndband með Helgu Kristjáns. Klassísk Spariförðun

Hega Kristjáns sýnir fallega kassíska spariförðun. Vörurnar sem hún notar í myndbandinu eru hér fyrir neðan. Sensai Micro Mousse Essence Day Veil Total Eye Treatment Glowing Base Flawless Satin Total Finish (Photoshop púðrið) Eye Shadow Palette í litnum Frosty Twilight Bronzing Powder í lit nr 2 Liquid Eyeliner í svörtum lit Eyebrow Pencil í lit […]

Laumugull – vörur sem er vert að veita athygli

Við hjá Beautybox.is erum þeirrar gæfu njótandi að fá að prófa allskonar snyrtivörur. Það er okkur mjög mikilvægt að prófa vörur til þess að vita hvað við erum að tala um og til að geta aðstoðað ykkur sem allra best. Hér á eftir eru nokkrar vel valdar vörur sem eru í miklu uppáhaldi hjá okkur […]

Hvað leyndist í Tímalausa Beautyboxinu?

Nýjasta Beautyboxið okkar var sannkallað aföldrunar (anti-ageing) box en ó hvað okkur vantar fallegra orð fyrir það svo boxið fékk nafnið Tímalausa Beautyboxið. Í boxinu leyndust 5 vörur sem áttu það allar sameiginlegt að varðveita æskuljómann og vernda okkur gegn skaðlegum áhrifum umhverfisins. Vörurnar eru virkar, byggðar á vísindum og verndandi. Boxið var einstaklega veglegt […]

ChitoCare undraefnið úr hafinu – Viðtal við Sigríði Vigfúsdóttur framkvæmdarstjóra ChitoCare

Við höfum heyrt að margir tóku andköf af gleði að sjá nýja ChitoCare Anti Ageing Repair Serumið í fullri stærð í boxinu, enda ekki furða því serumið er að andvirði 9.750 kr, glænýtt og ótrúlega spennandi vara. ChitoCare Serumið er einstaklega rakagefandi, mjúkt og eins og hún Agnes okkar segir í sýnikennslunni hérna fyrir neðan […]

Meistari ávaxtasýranna Dr. Dennis Gross er mættur á Beautybox.is

Okkur þykir fátt skemmtilegra en að kynna fyrir ykkur nýjar vörur og ný merki með Beautyboxinu okkar en þetta er í 5 skipti sem við gerum það og alls ekki í það síðasta 😉. Í þetta skiptið erum við extra spennt því merkið er ekki bara nýtt hjá okkur heldur nýtt á Íslandi og hefur […]

Maskinn sem kom GLAMGLOW á kortið

Youthmud maskinn frá Glamglow leyndist í Beautyboxinu sem er einstaklega spennandi því hann er ástæðan fyrir því að Glamglow merkið komst á kortið. Það sem gerir maskana frá Glamglow einstaklega góða er að þeir eru meira en bara maskar, þeir eru meðferðir líka enda heita allir maskarnir þeirra Mask-Treatment. Þeir eru virkir og þeir virka. […]

Síðara, þykkara og heilbrigðara hár með Hairburst Volume & Growth Elixir

Ég skil manna best þörfina fyrir það að blása, krulla og slétta hárið, enda jafnast fátt á við nýþvegið og fallega mótað hár. Hitinn getur aftur á móti skaðað á okkur hárið og ef þú ert ein af þeim sem er alltaf að safna en ekkert gerist þá er hitavörnin klárlega besti vinur þinn. Því […]

Hver er munurinn á kemískri sólarvörn og steinefna sólarvörn?

Í Tímalausa Beautyboxinu leyndist að sjálfsögðu sólarvörn, því þetta væri ekki alvöru „anti-ageing“ box nema það væri sólarvörn í boxinu enda er sólarvörnin það eina sem þú ættir aldrei að sleppa ef þú vilt komst hjá ótímabærum einkennum öldrunar. En sólin er einmitt ábyrg fyrir 90% af ótímabærri öldrun húðarinnar og það er ekki bara […]