Eins og við höfum talað um áður þá hugsum við vel um húðina okkar á þessum bæ og í stað þess að steikja hana í sólinni þá elskum við góða sólarvörn og góða sjálfbrúnku. Við vorum svo heppin að ein okkar uppáhalds sjálfbrúnka var í Sumpartý boxinu okkar en það var St. Tropez Express froðan […]
Í sýnikennslu vikunnar sýni ég hvernig hægt er að nota nýja fallega burstasettið frá Stylpro. Burstasettið inniheldur átta bursta, fullkomið bæði sem byrjunarsett eða viðbót í burstasafnið. Mér finnst ávallt mikilvægt að undirbúa húðina vel fyrir hverja förðun og byrjaði ég því á að nota My Clarins Mattifying Cream, dagkrem sem gefur húðinni góðan raka […]
Í sýnikennslu vikunnar ákvað ég að velja nokkrar vörur sem gefa frísklegt náttúrulegt lúkk fyrir verslunarmannahelgina. *Afsláttarkóðinn VERSLO gefur þér 20% afslátt af vörunum sem notaðar voru í sýnikennslunni út miðvikudaginn 7. ágúst. Fyrsta sem ég gerði var að spreyja L’oréal Stylista Beach Wave spreyjinu í hárið á Guðbjörgu, næst gerði ég fasta fléttu í […]
Í nýjustu sýnikennslunni okkar sýnir Ingunn Sig brúðarförðun á Marín Möndu sem var algjör hetja að mæta til okkar 2 vikum fyrir settan dag. Það er einstaklega mikilvægt að undirbúa húðina vel og nota góð krem fyrir stóra daginn. Ég notaði L’oréal Age Perfect Cell Renaissance dagkremið. Þetta krem veitir húðinni góðan raka, ver húðina […]
Fyrir sýnikennslu vikunnar ákvað ég að sýna létta sólkyssta húð og brúnan eyeliner. Ég byrja á því að undirbúa húðina með Nip+Fab Teen Skin Salicylic Acid Day Pads, þetta eru bómullarskífur sem jafna yfirborð húðarinnar, draga í sig alla umfram olíu og veita raka. Ég strýk yfir andltiið með einni skífu og set svo rakagefandi […]
Við erum heppnar að fá að eldast 😊 og að sjálfsögðu eldumst við allar eins og eðalvín og verðum betri með hverju árinu. En með aldrinum breytumst við líka og þurfum við því stundum að endurhugsa og breyta okkar förðunar venjum til þess að ná að draga fram það besta í okkar útliti. Bloggið er […]
Í nýjustu sýnikennslunni okkar sýnir Ingunn Sig hvernig hún dregur enn betur fram fegurð Önnu Maríu og sýnir okkur hvernig við getum tekið kvöldförðunina okkar á næsta level 🙂 Hér á eftir segir hún ykkur betur frá hvernig og af hverju og neðst eru svo vörurnar sem hún notaði. **** Fyrir sýnikennslu vikunnar bað ég […]
Í sýnikennslu vikunnar ákvað ég að gera frísklega húð og litaglaða augnförðun með fallegu Smashbox LA Cover Shoot pallettunni. Í sýnikennslu vikunnar ákvað ég að gera frísklega húð og litaglaða augnförðun með fallegu Smashbox LA Cover Shoot pallettunni. Mér finnst undirbúningur húðarinnar ávalt vera það mikilvægasta fyrir hverja förðun, ég ákvað að nota Nip+Fab Kale […]
Ingunn Sig gerði þessa fallegu brúðarförðun og í þessu bloggi fer hún betur yfir hvað hún gerði og af hverju 🙂 Mælum með að lesa. Förðun og umsjón Ingunn Sig Módel: Dísa Pétursdóttir Húðin er það mikilvægasta þegar kemur að brúðarförðun og er því mikilvægt að undirbúa hana einkar vel fyrir þennan stóra dag. Glamglow […]
Við ætlum að byrja að fara yfir vörurnar sem voru í Sumarpartý Beautyboxinu okkar sem kom út í byrjun mánaðar og fyrstu vörurnar sem okkur langar að kynna fyrir ykkur eru Nip+Fab ávaxtasýruskífurnar og primer maskinn sem voru í boxinu. Ávaxtasýrur Ávaxtasýrur hafa verið áberandi í húðumhirðu umræðunni á síðustu árum og þeir sem fylgjast […]
Vá ! Takk aftur fyrir okkur og frábærar viðtökur við Sumarpartý Beautyboxinu okkar en það seldist upp á 24 tímum!! Við pössuðum okkur einstaklega vel í þetta skiptið að segja ekki hvað væri í boxinu of snemma til að passa að allir væru nú búnir að fá að njóta þess að opna boxið 🙂 en […]
Í nýjustu sýnikennslunni hennar Ingunnar Sig sýnir hún okkur fallega og ferska sumarförðun á Aþenu Örnu.
Ef þið eruð forvitin um StylPro græjunar þá mælum við með því að kíkja á myndbandið hér fyrir neðan þar sem Ingunn Sigurðardóttir sýnir ykkur hvernig þær og hreinsivökvinn virka. Mælum einnig með að kíkja á þetta blogg hér: https://beautybox.is/stylpro-hreinir-og-thurrir-fordunarburstar-a-30-sek/ ef þið viljið vita meira um af hverju það er mikilvægt að þrífa burstana ykkar […]
Maskarar eru ein mest notaðasta förðunarvaran í heiminum og eigum við það flestar sameiginlegt að þó svo við málum okkur ekkert mikið, eða kunnum ekkert of vel á allar þessar förðunarnýjungar þá er maskari samt alltaf klassískur og kunnum við flestar að skella honum á. En við erum líka eins mismunandi og við erum margar […]
Við höfum áður skrifað blogg um það hversu mikilvægt það er að þrífa förðunarburstana okkar en þetta er málefni sem að við höfum sérstakan áhuga á. Förðunarburstar eru gróðrarstía fyrir bakteríur, og þá sérstaklega þeir sem við notum í blautar vörur svosem farða. Við fáum ótal spurningar um húðumhirðu, en hver er tilgangurinn í að […]
Ein algengasta spurningin sem við fáum hér á Beautybox.is er: Hvað er eiginlega serum? Til hvers ætti maður að nota það? Svo ef þú ert að velta þessu fyrir þér þá ert þú svo sannarlega ekki ein – þar af leiðandi báðum við Margréti um að skrifa blogg fyrir okkur sem að útskýrir hvað „þetta […]
Við höldum áfram að fara yfir vörurnar í #bakviðtjöldin Beautyboxinu og nú ætlum við að segja ykkur betur frá Becca First Light farðagrunninum sem var í boxinu og er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þegar að við völdum vörunar í #bakviðtjöldið Beautyboxið okkar fannst okkur mjög mikilvægt að hafa farðagrunn í boxinu þar sem að […]
Ingunn Sig fékk frænku sína hana Kolbrúnu Birnu Burrell fermingarstelpu til þess að vera módel fyrir okkur. Við vijum taka það fram að fermingarstelpur þurfa að sjálfsögðu alls ekki að mála sig frekar en foreldrar leyfa og þær vilja, en fermingardagurinn er oft sá dagur sem að stelpur fá að farða sig í fyrsta skipti […]
Á meðgöngu þarf að aðlaga sig að ýmsum hlutum til að hlífa litlu kríli sem vex og dafnar, t.d. með breyttu matarræði og drekka ekki áfengi. En það eru líka ákveðin innihaldsefni í snyrtivörum sem þarf að athuga með á meðgöngu. Sum innihaldsefni er best að hætta að nota en önnur innihaldsefni skal vara sig […]
Við höldum áfram að fara yfir vörurnar sem voru í #bakviðtjöldin Beautyboxinu okkar og næst ætlum við að segja ykkur af hverju við völdum St. Tropez Self Tan Purity Bronzing andlitsvatnið. Nú þegar við erum búin að fara yfir það af hverju sólarvörn sé það mikilvægasta í húðrútínunni þinni (hægt að lesa HÉR) þá verðum […]
Það getur verið erfitt að finna hinn fullkomna rauða varalit fyrir sig. Margir eru hræddir við að setja á sig rauðan varalit meðan sumir virðast ekki fara út án hans. Ég veit um margar sem hafa reynt að finna sinn besta lit en finnst það erfitt og vita ekki að hverju skal leita. Ég hef […]
Sólarvörn er það BESTA sem þú getur gert fyrir húðina þína, viljir þú sporna við ótímabærri öldrun hennar. En það er ekki alveg sama hvaða sólarvörn það er, heldur þarf sólarvörnin að innihalda bæði UVA og UVB vörn. Okkur langar að þið skiljið af hverju við ættum að nota sólarvörn daglega. Ég ætla að hafa […]
Hugmyndin af #bakviðtjöldin Beautyboxinu kviknaði út frá algengum spurningum sem við fáum frá ykkur. Hvernig á að nota primer? hvað er besta sem ég get gert til að koma í veg fyrir ótímanbæra öldrun húðarinnar? Af hverju slitnar hárið mitt svona? Hvað er eiginlega maskara primer? og hvernig get litið ferskari út? Svarið við öllum […]
Í þessari viku sýnir Ingunn Sig okkur hversdagslega glam förðun með nýju augnhárunum okkar frá Duff Lashes og hversu auðveld Jean Louis David krullubyssan er í notkun. Áherslan er á fallega húð og mjúka liti.
Nýjasta sýnikennslan okkar er á glæsilegu Ingunni Helgadóttur og eftir Ingunni Sigurðardóttur. Ef þið hafið spurningar eða viljið fá persónulega ráðgjöf þá ekki vera feimnin að senda okkur línu á Facebook: https://facebook.com/beautyboxisland
Bjútítips sem maður rekst á eru misgóð. Sum virka frábærlega en önnur ekki neitt og sumum geta hreinlega verið slæmt að fara eftir. Í gegnum tíðina hef ég prófað og komist að mörgum góðum ráðum sem ég hef t.d. deilt með ykkur HÉR, en nú vil ég deila með ykkur hvaða ráðum er best að […]
Við erum ótrúlega stolt að kynna ykkur fyrir nýjasta meðliminn í Beautybox.is fjölskyldunni hana Ingunni Sig sem ætlar að gera fyrir okkur vikulegar sýnikennslur. Sýnikennslurnar birtast fyrst á Instagram og á Instagram story og koma svo hér inn á með link á allar vörurnar 🙂 Við ætlum ekki að hafa þetta mikið lengra heldur bara […]
Við spurðum ykkur um daginn á Facebook hvort þið hefðuð áhuga á því að við myndum segja ykkur betur frá förðunum okkar, hvernig þeir virka og af hverju þeir gætu hentað ykkur. Það er greinilegt að við eigum mörg við sama vandamálið að stríða og prufum hvern farðann á eftir öðrum án þess að skilja […]
Nú í byrjun nýs árs þótti okkur tilvalið að fara yfir vinsælustu vörurnar 2018. Listinn kemur okkur alls ekki á óvart en gaman er að skoða hann og sjá að allar þessar vörur eiga það sameiginlegt að vera mjög vandaðar og einfaldlega bara gera það sem þær segjast gera. Gaman er einnig að segja frá […]
Það er algengur misskilningur að halda að vörur sem eru merktar sem “Anti aging” séu aðeins fyrir þroskaða húð. Anti aging þýðir nefnilega andstæða öldrunar og er því mikilvægasti punkturinn: Að fyrirbyggja er miklu betra og auðveldara en að laga og taka til baka. Anti aging vörur eru því sérstaklega hannaðar til þess að fyrirbyggja […]
Við erum svo ótrúlega stolt af nýjasta Beautyboxinu okkar sem er með hátíðar og gull þema. Fyrsta Beautyboxið okkar kom út í desember í fyrra og við gætum ekki verið þakklátari fyrir viðtökurnar frá ykkur. Að búa til vöru eins og Beautyboxið þar sem við hvetjum ykkur til þess að dekra við ykkur sjálfar er […]
Það er hægt að nota svo margar snyrtivörur á annan hátt en þeim er ætlað. Ég hef tekið saman hér að neðan mínar uppáhalds hugmyndir um hvernig er hægt að nýta snyrtivörur á annan hátt. Ef þið vitið um fleiri leiðir til þess að nota snyrtivörur á óhefðbundinn hátt megið þið endilega deila þeim með […]
































