Vörulýsing
Þessi endingargóði og ljómandi steinefnapúðurfarði gefur létta til miðlungs þekju sem má byggja upp. Áferðin er svo létt að þú finnur ekki fyrir henni. Hann sléttir húðina sýnilega og hylur útlitslýti. Farðinn bætir áferð húðarinnar og hylur sýnilegar svitaholur, án þess að safnast í fínar línur og hrukkur og „ofpúðra“. Smashbox HALO POWDER þornar ekki upp og gefur þér flottan gljáa sem dregur fram þinn náttúrulega ljóma. Hugvitssamlegar umbúðir tryggja að ekkert fer til spillis og að það er auðvelt að skammta nákvæmlega rétt magn af púðri.
Allar Smashbox-vörur eru „Cruelty Free“.
Helstu kostir: Hentar öllum húðgerðum. Prófað af húðlæknum. „Cruelty Free“. Inniheldur ekki ilmefni.
Stútfullt af góðum efnum fyrir húðina eins og goji ber, gull og peptíð.
Púðrið veitir ljóma, frískleika og helst fallegt á húðinni án þess að það fari í fínar línur.
Notkunarleiðbeiningar
Snúðu Powderizer-dósinni. Snúðu burstanum í hringi í púðrinu og berðu púðrið svo á andlitið. Notaðu með 1. Photo Finish Vitamin Glow Primer 2. Halo Glow Duo Highlighter
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.