Vörulýsing
Augnháralengingar sem þú getur gert hvar og hvenær sem er! Augnhárin eru sett undir þín eigin augnhár og hægt að byggja upp að vild. Augnhárin er bæði hægt að hafa í einn dag eða í allt að 10 daga með því að nota „Overnighter“ (fylgir ekki með í settinu). Valda ekki skemmdum á þínum eigin augnhárum. Til þess að taka augnhárin af er best að setja olíufrían farðahreinsi í bómul og halda yfir augunum í 10 sekúndur áður en augnhárin eru tekin varlega af.
Notkunarleiðbeiningar
Lítið magn af „Bond“ er sett á þín eigin augnhár eins og maskari. Augnhárunum er síðan raðað þétt undir þín eigin augnhár aðeins frá vatnslínunni. Að lokum er „Seal“ sett á augnhárin til að fjarlægja allt klístur og festa þau.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.