Vörulýsing
CC Red Correct er margnota vara sem inniheldur græn litarefni sem leiðréttir roða í húðinni og inniheldur breytanleg litarefni í hylkjum sem aðlaga sig að náttúrulegum litatón húðarinnar og leiðrétta og hylja ójöfnur í húð. Það gefur þunna þekju sem aðlagast þínum húðlit og eykur ljóma og raka í húðinni. Kremið veitir breiðvirka SPF 25 sólarvörn. CC Red Correct formúlan er græn á litinn en breytist og aðlagar sig að náttúrulegum húðlit þegar hún er borin á.
BB CRÈME AU GINSENG er einstök kóresk formúla sem fullkomnar áferð húðarinnar. Hún inniheldur ginseng sem gefur húðinni fullkomna og slétta áferð ásamt því að veita góða næringu og vernd. Þessi margnota húðvara nýtir kóreska sérfræðiþekkingu en formúlan aðlagar litatón kremsins að þínum náttúrulega húðlit
Notkunarleiðbeiningar
Byrjið á að bera CC Red Correct á hreina húðina. Berið þunnt lag á andlitið á sama hátt og andlitskrem er borið á. Nuddið kremið vel inn í húðina þar til liturinn hefur aðlagast þínum húðlit fullkomlega.
Berið svo BB kremið á andlit og háls og dreifið vel úr kreminu með höndunum. Best er að vinna litinn út frá miðju andlitsins til að fá fullkomna áferð með „Baby Skin“ áhrifum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.