Vörulýsing
Hin fullkomna lúxusmeðferð til að laða fram tindrandi falleg augu.
Leyndarmálið á bak við unglegt útlit er ekki síst augun. Húðin umhverfis þau er öðruvísi; hún er þynnri en annars staðar á öllum líkamanum og því viðkvæmari fyrir þeim breytingum sem verða á húðinni með aldrinum.
ULTIMATE THE EYE CREAM er í hinni glæsilegu ULTIMATE vörulínu og hefur það reynst hreint magnað í baráttunni gegn ótímabærum ummerkjum öldrunar. ULTIMATE THE EYE CREAM er byggt á ákaflega djúpverkandi næringarformúlu og veitir því þessu viðkvæma svæði umhverfis augun alla þá alúð og umhyggju sem það þarfnast.
Notkunarleiðbeiningar
Notist kvölds og morgna. Eftir rakavatn og rakakrem.