Vörulýsing
Vektu húðina og skynfærin með þessari freyðandi hreinsifroðu. Þegar varan er borin á húðina breytist hún í silkimjúka froðu sem losar um óhreinindi og nærir á einstakan hátt. Svitaholur virðast minni og húðin verður mýkri, frísklegri og jafnari. Líkt og nýju lífi sé blásið í húðina verður hún tandurhrein, björt og tilbúin fyrir næsta skref húðrútínunnar.
Án paraben. Þessi vara er hluti að verkefni SENSAI í tengslum við sjálfbæran lúxus, sem er leið SENSAI til að virða náttúruna og auðlindir hennar og stuðla að betri framtíð.
– Pumpan og tappinn eru að hluta til úr lífrænu plastefni.
– Kassinn er úr FSC-vottuðu efni sem er að hluta til úr krömdum sykurreyr (bagasse) sem fellur til við ræktun sykurreyrs.
– Perilla-laufextrakt er unnið úr ilmríkum jurtum sem eru ræktaðar á býlum sem viðhafa endurvinnslu og endurnýtingu.
Notkunarleiðbeiningar
Án þess að hrista flöskuna eða snúa henni á hvolf skal setja hæfilegt magn vörunnar í lófann og nudda varlega yfir allt andlitið (kinnar, enni, nef og höku). Forðist að bera á augnlok og augnsvæði. Þrýstið létt á og nuddið varlega með hringlaga hreyfingum. Skolið vandlega af með vatni eða volgu vatni.