Vörulýsing
Endurnýjaðu yfirbragð húðarinnar með fersku hreinsigeli sem losar um stíflur í svitaholum. Háþróuð Skin Brilliance tæknin leysir upp og fjarlægir keratínstíflur án þess að ganga á rakaforða húðarinnar.
Þetta einstaka og ferska gel leysir upp stíflur í svitaholum án þess að ganga á rakabirgðir húðarinnar. Skin Brilliance tæknin er hönnuð til að leysa upp og fjarlægja keratínstíflur, hún hreinsar húðina og gerir áferð hennar jafna og ferska. Auk þess að innihalda einkennisefni Sensai, Koishimaru Silk EX og Ginseng-kjarna, afhjúpar gelið húðina í sínu tærasta og mýksta formi, líkt og ósnortið silki.
Notkunarleiðbeiningar
Hreinsiefnið freyðir ekki. Eftir að farðinn hefur verið fjarlægður skaltu pumpa tveimur skömmtum af geli í lófann, nudda því varlega í raka húðina og einbeita þér að stífluðum svæðum. Skolaðu svo andlitið vandlega með vatni. Notist á kvöldin eftir andlitshreinsun og á morgnana eitt og sér.