Vörulýsing
Tvíþættur maski með kremkenndri leirblöndu sem djúphreinsar húðina, hreinsar gætilega burt dauðar húðfrumur og styrkir byggingu húðarinnar.
Minnkar ásýnd húðhola og húðin öðlast aftur tærleika og birtu.
Þú færð samstundis fallegan og ferskan ljóma.
Maskinn nýtir rósaleir til að soga til sín og fjarlægja bæði óhreinindi og umframolíu úr svitaholunum.
Hann fjarlægir gætilega lúnar og dauðar húðfrumur og færir þér leiftrandi húð með aðstoð frá jojobakornum.
Þú endurheimtir ljóma húðarinnar með kanadískri dúnurt og slakar á húðinni með persnesku silkitré.
- Helstu innihaldsefni:
-Vitað er að dúnurt veitir öfluga vörn við krefjandi umhverfisaðstæður og er ævinlega fyrsta plantan sem blómstrar eftir skógarelda.
Hún færir slappri, gráleitri húð ljóma.
-Rósaleir er mildur leir sem fer mjúkum höndum um húðina og hjálpar þér að hreinsa að fága svitaholurnar.
Leir hefur verið notaður í árþúsundir sem öflugt afeitrunarefni, allt frá tímum Kleópötru og Nefertiti.
-Persneskt silkitré hefur streitulosandi eiginleika og er þekkt sem „hamingjutréð“.
-Jojoba lagfærir gætilega grunnþætti húðarinnar
Notkunarleiðbeiningar
Berðu maskann á hreina og þurra húð og nuddaðu.
Láttu maskann virka í 10 mínútur, eða þar til hann er orðinn þurr.
Vættu fingurgómana og nuddaðu húðina gætilega til að losa maskann og auðvelda þér að fjarlægja hann.
Skolaðu með volgu vatni. Notaðu 2–3 sinnum í viku, eða eftir þörfum.
Meira um Origins
Vörurnar frá Origins eru náttúrulegar og framleiddar án parabena, phthalates, propylene glycol, mineral olía, PABA, peetrolatum, parrafin og DEA
Þær innihalda hágæða plöntur og innihaldsefni frá jörðinni og hafinu sem eru blönduð með öruggum, hreinum aðferðum sem styðjast við háþróaða tækni og vísindi.
Vörurnar frá Origins eru framleiddar úr sjálfbærum hráefnum, með vindorku og vistvænum framleiðsluaðferðum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.