Vörulýsing
Gjafasett sem inniheldur húðvarnir fyrir öll – Verndaðu húðina fyrir skaðlegum sólargeislum hvort sem þú ert í vinnunni, uppi á fjalli eða úti að hlaupa. Rakakremið hentar fyrir öll, alla daga. Primerinn hentar bæði vel undir farða en líka einn og sér því hann er svitaþolinn. Svo ef þú ætlar í útivist þar sem þú munt svitna er primerinn frábær vörn. Auðvitað er svo vörn fyrir varirnar líka í gjafakassanum svo andlitið sé vel varið.
the everyday one – face moisturiser SPF50 : Létt rakakrem með SPF50 vörn gegn UVA+UVB geislum. Dagkremið vinnur hart að því að vernda húðina þína en blandan inniheldur Hýalúron sýru og c-vítamín til að gefa þér góðan raka og fallegt glow. Ilmefnalaust og hentar öllum húðgerðum.
the one that’s got it all – sun primer SPF50 : Léttur og mattandi farðagrunnur (primer) sem undirbýr húðina fyrir daginn ásamt því að vernda gegn sólinni með SPF50 vörn gegn UVA + UVB geislum. Inniheldur rakagefandi hýalúrón sýru og c-vítamín. Formúlan er svita- og vatnsfráhindrandi og er því fullkominn fyrir rakt loftslag eða í ræktina!
the one for your lips SPF50 : Einstaklega rakagefandi varasalvi með SPF50 vörn gegn UVA og UVB geislum sólarinnar. Inniheldur shea smjör og hýalúrón sýru fyrir mjúkar og vel nærðar varir.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.