Makkarone Collection Vor og sumar lína Nailberry 2023.
Dekraðu við þig með nýju sumarlitunum frá Nailberry, þrennunni sem er innblásinn af litbrigðum frönsku makkarónukökunar. Bjartir, mjúkir og ómótstæðilegir pastellitir sem færa þér sumarið og eru sannkölluð veisla fyrir augað. Hver stroka af vel þekktu breiðu burstunum okkar er fullkomin, vel þekjandi, litrík og gljáandi með litum sem endast og endast. Makkarone Collection svalar þörfinni fyrir gómsæt sætindi þetta sumarið og færir þér ferskleika og fjör fyrir hendur og fætur.
Simply The Zest – Rjómakennd sítróna. Þessi fjörugi pastelguli litur sem er innblásin af ljúffengum sítrónutónum passar fullkomlega fyrir sumarið. Passar bæði með hversdagsfötunum eða þegar þú ætlar að lyfta þér upp og fara í uppáhalds sumarkjólinn. Það munu fleiri en þú falla fyrir þessum fallega lit og hann mun vekja athygli.
Nailberry naglalökkin eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda og hleypa í gegn raka og súrefni. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”. L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.
L’Oxygéné eru án 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum.
Þau eru:
- formaldehýð
- túlín
- kemísk kamfóra
- DPB (skaðleg þalöt)
- formaldehýð kvoðu (resin)
- xylene
- ethyl tosylamide
- triphenyl phosphate
- alkóhóls
- parabena
- dýraafurða
- glútens (sem er ekki sjálfgefið)
Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygén.
Notkunarleiðbeiningar
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast:
1. Þvo á sér hendurnar, setja spritt eða naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi.
2. Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setja þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð.
3. 2 þunnar umferðir af Nailberry naglalakki.
4. Setja yfirlakk sem gæti verið Fast dry gloss eða Shine & Breathe.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.