DRx Blemish Solutions™ Acne Eliminating Gel er fljótvirkandi gelmeðferð gegn bólum sem bera má yfir allt andlitið en virknin er knúin áfram af 2% salisýlsýru, AHA-sýrum, níasínamíði og munkapipar til að vinna gegn bólumyndun, draga úr roða, leysa upp stíflur í svitaholum, stjórna olíumyndun og fyrirbyggja frekari bólumyndun í framtíðinni. Aloe vera og grænt te sefa húðina og koma húðinni í betra jafnvægi – án bóla.
Helstu innihaldsefni:
- Salisýlsýra er beta hýdroxý-sýra sem bæði leysir upp dauðar húðfrumur á yfirborði húðarinnar og leysir upp stíflur í svitaholum.
- Níasínamíð (B3) er nauðsynlegt upp á heilsu líkamans. Það hjálpar við að minnka ásýnd svitahola, kemur jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, dregur úr roða og örum eftir þrymlabólur auk þess að fyrirbyggja frekari bólumyndun.
- Munkapipar er fenginn náttúrulega frá skírtrjám og er öflug lækningajurt. Hann hjálpar við að koma olíuframleiðslu húðarinnar í jafnvægi og til að fyrirbyggja frekari bólumyndun.
Á 3 dögum sáu neytendur verulegan mun á:
- Fjölda og stærð bóla.
- Bólgumyndun.
- Olíuframleiðslu.
- Stíflum í svitaholum.
- Roða.
Notkunarleiðbeiningar
Berðu þunnt lag einu sinni á dag yfir hreina og þurra húðina. Ef þú ert að nota Alpha Beta® Daily Peel á morgnana, skaltu nota Acne Eliminating Gel á kvöldin. Fylgdu þessu eftir með Dr. Dennis Gross Skincare™ serumi og rakakrem að eigin vali.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.