Vörulýsing
Gjafaett að andvirði 12.780 kr.
Better Than Sex Limited Edition Mascara Collection er gjafasett sem inniheldur tvo Better Than Sex Mascara í litnum Black. Better Than Sex Mascara er einn vinsælasti maskarinn frá Too Faced sem lyftir, lengir og þykkir augnhárin. Stundaglaslaga burstinn á maskaranum nær utan um hvert augnhár, aðskilur þau og lyftir þeim frá rót til enda. Maskarinn hentar jafnt fyrir hversdagsförðun sem og þegar þú vilt skapa dramatískari augnförðun.
Notkunarleiðbeiningar
Neðri augnhár: Skref 1: Berið maskarann fyrst á neðri augnhárin til að koma í veg fyrir að blautur maskari smitist á efra augnlokið. Skref 2: Byrjið við rót augnháranna og farið í stuttum hreyfingum út að enda augnháranna til að fá fallega sveigju og mikla fyllingu. Efri augnhár: Skref 1: Berið fyrsta lagið á frá rót augnháranna og út að enda þeirra. Skref 2: Berið maskarann á með sikk sakk hreyfingum til að byggja upp maskarann.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.