Vörulýsing
Feldu lýtin, fegraðu húðina og búðu til skyggingu með þessum hyljara sem endist í 24 klukkustundir. Varan felur sýnileg útlitslýti, án þess að safnast fyrir í fínu línunum. Ríkuleg, kremuð blanda með litarefni sem felur bauga, mislita bletti og roða.
Hentar frábærlega fyrir allar húðgerðir og er olíulaus.
Mjúka, sveigjanlega áhaldið rennur auðveldlega um alla drætti andlitsins og í kringum augun og virkar frábærlega með einni stroku. Varan er prófuð af húðlæknum og augnlæknum, veldur ekki bólumyndun og eins og allar Smashbox-vörur er þessi hyljari „Cruelty Free“ og vegan.
Hollráð sérfræðinganna: Hyljari og lagfæring
Til að fela bauga skaltu velja lit með undirtón í ferskjulit. Settu nokkra dropa undir augun og blandaðu svo með fingrunum eða með bursta.
Til að hylja mislita bletti er gott að velja lit með gylltum undirtón og bera hann beint á svæðið. Berðu á með léttum hreyfingum til að liturinn blandist vel á húðinni.
Til að fela bólur eða roða er best að velja litatóninn sem er líkastur undirtón þinnar húðar. Berðu vöruna beint á svæðið og berðu á með léttum þrýstingi til að blanda henni vel inn í húðina.
Hollráð sérfræðinganna: Skygging og ljómi
Til að ná fram fallegri skyggingu skaltu velja hyljara sem er 1-2 litatónum dekkri en þinn húðlitur. Berðu vöruna á undir kinnbeinin og meðfram hársrótinni. Blandaðu vörunni á húðina með uppvísandi hreyfingum.
Til að lýsa húðina skaltu velja hyljara sem er 1–2 litatónum ljósari en þinn húðtónn. Berðu á með léttum hreyfingum efst á kinnbeinin, niður eftir miðju nefinu, yfir mitt ennið og á aðra áberandi staði á andlitinu. Teiknaðu þríhyrning undir augun til að gefa andlitinu aukna lyftingu. Berðu á með léttum hreyfingum til að liturinn blandist vel. Varan þarf að virka í 20 sekúndur áður en endanlegur litblær kemur fram.
Þessi olíulausa blanda inniheldur örsmáar kúlur sem endurkasta ljósi og hylja bauga og bletti án þess að skilja eftir hvíta eða gráleita slikju. Berðu í þunnu lagi á hvaða svæði húðarinnar sem er, einnig undir augun, og byggðu gætilega upp þekju þar til áferðin er fullkomin.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.