Vörulýsing
Black Rose Precious Face Oil er andlitsolía fyrir þurra eða þroskaða húð. Þessi silkimjúka þurrolía býr yfir háum styrk virkra innihaldsefna sem undirbúa húðina, næra hana og vinnur gegn öldrunarmerkjum. Andlitsolían er rík af ómega 3 og 6 og undirbýr húðina til að taka á móti daglegum húðvörum.
Með kraftmikilli blöndu af virkum efnum úr plönturíkinu sem næra, endurnýja og vernda (padína-þari, avókadó og náttúruleg tókóferól) þá veitir þessi andlitsolía nauðsynlega þætti fyrir orku húðarinnar og ungleika.
Plómu- og kamelínuolía viðhalda jafnvægi lípíða á yfirborði húðarinnar. Svört rós er kjarninn í formúlunni og veitir silkikennda mýkt. Hún sameinast ilmkjarnaolíum úr búlgarskri rós og magnólíu sem búa yfir tónandi og sefandi eiginleikum og vekja upp skynfærin.
Sjáanlega sléttari hrukkur og fínar línur, húðin verður endurlífguð og fær ljómandi yfirbragð.
Ávinningur innihaldsefna
Plómuolía (rík af ómega 6): styrkir varnarlag húðarinnar og veitir þægindi og mýkt.
Kamelínuolía (rík af ómega 3 og 6): nærir, sefar og varðveitir jafnvægi lípíða.
Plöntuskvalín: nærir, veitir raka og styrkir varnarfilmu húðarinnar.
Náttúruleg tókóferól: vinna gegn sindurefnum.
Avókadó: endurnýjar, gerir við, nærir og sefar.
Padína-þari: örvar nýmyndun glýkósamínóglýkana.
Svört rós: mýkir.
Búlgörsk rós (ilmkjarnaolía): tónar.
Magnólía (ilmkjarnaolía): sefar.
Blágresi (ilmkjarnaolía) hreinsar.
Notkunarleiðbeiningar
Berðu 3 til 7 dropa að morgni til eða kvöldi á hreina húð, andlit og háls, en forðastu augnsvæðið. Andlitsolíuna má nota eina og sér eða á undan daglegri húðumhirðu til að undirbúa húðina.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.