Vörulýsing
Saman í gjafaöskju CELLULAR PERFORMANCE INTENSIVE HAND TREATMENT sem er hannað með það í huga að ljá höndunum fínlega ásýnd og silkimjúka áferð Koishimaru-silkis ásamt einu pari af TREATMENT GLOVES, margnota bómullarhanskar sem notaðir eru til sérstakrar meðferðar.
Þetta silkimjúka handkrem róar þurrar, viðkvæmar hendur og viðkvæmar neglur. Kremið er stútfullt af öflugum yngjandi eiginleikum og silkimjúk áferðin mýkir hendur og fegrar neglur. Þegar kremið er borið á sjá verndandi olíurnar til þess að rakinn haldist inni í húðinni til að næra og vernda varnarlag húðarinnar með léttum og gagnsæjum hjúp. Hannað til að ljá höndunum útlit og yfirbragð Koishimaru-silkis og veita þeim mýkt, fyllingu og ljóma með róandi og mildum ilmi.
Þessir lúxushanskar eru fullkomin viðbót við húðumhirðuna. Þeir eru framleiddir úr hágæðabómull og eru lykillinn að silkimjúkum höndum. Notist með CELLULAR PERFORMANCE INTENSIVE HAND TREATMENT til að mýkja og græða hendur sem mikið hefur mætt á. Mælt er með að sofa með hanskana til að vakna með mjúkar, stinnar og ljómandi hendur.
Notkunarleiðbeiningar
Berið hæfilegt magn af handkreminu á hendur og neglur og setjið á ykkur hanskana í 10-20 mínútur. Fyrir bestan árangur má einnig sofa með hanskana.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.