Vörulýsing
Afar áhrifaríkt næturserum sem inniheldur sýrur og endurnýjar húðina yfir nóttina, dregur úr öldrunareinkennum húðarinnar, eykur ljóma og heilbrigt yfirbragð og dregur úr þreytumerkjum.
Þessi einstaka formúla eykur mýkt húðarinnar og stinnleika. Húðin fær meiri fyllingu eftir aðeins eitt skipti. Með reglulegri notkun sjá sýrurnar og norræna birkivatnið til þess að húðin verður bjartari, jafnari í áferð og litatón og hrukkur og fínar línur verða minna áberandi. Formúlan vinnur einnig á litablettum sem kunna að myndast í sólinni með aldrinum eða eftir sólina.
Um Mádara
Vörurnar frá Madara hafa Ecocert lífræna vottun, og eru ekki prófaðar á dýrum.
Notkunarleiðbeiningar
Berið á hreina húð að kvöldi. Forðist að nota aðrar húðvörur í klukkustund eftir að serumið hefur verið sett á húðina. Eftir klukkustund má klára húðrútínuna. Notist þrisvar í viku eða sem áhrifamikla meðferð í 30 daga í senn 2-3 á ári. Forðist beint sólarljós eftir notkun og notið sólarvörn. Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri húð, þreyttri húð og húð sem þarf á endurnýjun að halda. Viðkvæmari húðgerðir ættu að fara varlega og prófa sig áfram með vörur sem innihalda sýrur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.