Vörulýsing
Áhrifarík blanda af hvítri leðju, AHA ávaxtasýrum og steinefnum sem skrúbba húðina og losar hana við dauðar huðfrumur og óhreinindi.
Líkamsskrúbburinn mýkir húðina og áferðin verður miklu sléttari, stinnari og silkimúk viðkomu. AHA sýrurnar virka þannig að þær losa upp dauðar húðfrumur í húðinni, ná óhreinindum úr húðholum þannig að húðin verður hreinni og heilbrigðari.
Formúlan inniheldur olíur sem næra húðina og hefa henni raka og mýkt. Andoxunarefnin styrkja varnir húðarinnar og hjálpa henni að ná jafnvægi.
Auk alls þessa vinnur skrúbburinn á litamisfellum og litablettum og dregur úr líkunum á inngrónum hárum og bólum.
Hentar vel fyrir bringu, hendur, bak, maga, mjaðmir og fætur. Hentar ekki fyrir andlitið. Roði og minniháttar erting eða kitl í húðinni getur komið fram og er það eðlilegt. Mikilvægt er að forðast beint sólarljós eftir notkun og ekki nota eftir laser meðferð eða aðrar slíkar meðferðir.
Notkunarleiðbeiningar
Notið 1-2 í viku. Skref 1: berið á hreina húð með sérstaka áherslu á erfiðu svæðin. Skref 2: nuddið á húðina í 3-5 mínútur. Skref 3: skolið með vatni og nuddið mjúklega þar til skrúbburinn hefur skolast af.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.