Fljótvirkandi meðferð til daglegrar notkunar í tveimur skrefum fyrir áhrifaríka útkomu heima. Alpha Beta® Universal Daily Peel er áhrifarík blanda af 5 AHA/BHA-sýrum, ásamt andoxunarefnum og vítamínum sem leysa upp dauðar húðfrumur ásamt umfram húðfitu og óhreinindum auk þess að bæta húðtón og áferð húðarinnar.
Endurlífgaðu fallega og heilbrigða húð með þessari endurnýjandi sýrumeðferð frá Dr. Dennis Gross. Þetta er auðveld og örugg útgáfa til heimanotkunar af þeim sýrumeðferðum sem hann hefur þróað og notað á skjólstæðinga sína á stofunni í New York.
Skref 1 er fyllt endurnærandi og kraftmiklum en mildum endurnýjandi sýrum. Skref 2 stjórnar virkni alfa hýdroxý-sýranna, vinnur gegn öldrunarmerkjum og nærir húðina. Þar að auki helst húðin í auknu jafnvægi, verður sléttari og ljómandi – fullkomlega undirbúin fyrir áhrifaríkar húðvörur sem á eftir fylgja.
Húðin fær samstundis hressari og ljómandi ásýnd. Þessi alhliða formúla inniheldur samsetningu 5 sýra, fullkomin fyrir þá sem eru að nota sýrumeðferð í fyrsta sinn og fyrir allar húðgerðir.
Helstu innihaldsefni:
Lykilinnihaldsefni í skrefi 1:
- 5 Alpha Beta®-sýrur leysa upp dauðar húðfrumur ásamt því að tóna og slétta húðina.
- Kamilla hefur bólgueyðandi áhrif sem hjálpar til við að sefa húðina.
Lykilinnihaldsefni í skrefi 2:
- Retínól hjálpar til við að draga úr fínum línum og hrukkum auk þess að bæta rakastig og teygjanleika húðarinnar.
- Grænt te er náttúrulegt andoxunarefni sem verndar húðina gegn sindurefna og umhverfismengun.
Í neytendarannsókn byggðri á daglegri notkun, eftir 28 daga:
- 96% voru því sammála að húðin virkaði unglegri.
- 92% voru því sammála að húðin bjó yfir auknum þéttleika og ljóma.
- 90% voru því sammála að húðin virkaði bjartari og húðtónn þeirra væri jafnari.
Notkunarleiðbeiningar
Fyrir hámarksárangur skal nota vöruna kvölds eða morgna. Þeir sem eru að nota sýrumeðferð í fyrsta sinn geta notað vöruna annan hvern dag á meðan húðin aðlagast virkninni. Nuddaðu skrefi 1 á hreina og þurra húðina þar til skífan er þurr. Láttu tvær mínútur líða áður en þú endurtekur aðferðina með skrefi 2. Til að fá enn betri útkomu skaltu fylgja þessu eftir með serumi og rakakremi að eigin vali frá Dr. Dennis Gross Skincare.™
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.