Vörulýsing
Styrkur og mýkt
Silkimjúk hárnæring sem veitir djúpan raka, bætir áferð og nærir hárið án þess að þyngja það. Formúlan inniheldur kítósan, kollagen og kísil – náttúruleg hráefni úr hafinu sem styrkja hárið,
viðhalda mýkt og styðja við náttúrulegt viðgerðarferli þess. Útkoman er glansandi, mjúkt og vel nært hár.
INNSÆI ber hreinan og róandi ilm sem vekur skilningarvitin. Ocean Breeze, innblásinn af tærri hafgolunni við Íslandsstrendur, mætir mildum og grænum tónum af sítrónugrasi. Við hverja notkun fyllist rýmið af fersku og róandi andrúmslofti sem minnir á sjávarloft og kyrrð náttúrunnar.
96% náttúruleg innihaldsefni.
Notkun: Hentar til daglegrar notkunar. Berið í hreint, rakt hár. Látið bíða andartak og skolið síðan vel.
Fyrir hvern: Næringin hentar öllum hárgerðum og nærir sérstaklega þurrt hár.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.