Vörulýsing
Gjafakassi sem inniheldur LASH LENGTHENER, tinnusvartur maskari sem lengir og mótar á óaðfinnanlegan hátt og SPONGE CHIEF (half size) sem er afar mjúkur svampklútur sem SENSAI þróaði sérstaklega til að hreinsa burt 38° maskarana ásamt húðhreinsivörum án þess að valda álagi á húðina.
Sérhannaður burstinn grípur jafnvel stystu augnhárin og aðskilur þau. Skilar einstakri áferð og sveigju sem helst allan daginn. Rennur ekki til, og þolir tár, svita og vatn upp að 38° og SPONGE CHIEF (half size) sem er afar mjúkur svampklútur sem SENSAI þróaði sérstaklega til að hreinsa burt 38° maskarana ásamt húðhreinsivörum án þess að valda álagi á húðina.
Sérhannaðar teygjanlegar og mótandi fjölliður í formúlunni virka eins og vökvi sem lengja augnhárin og hjúpa þau gljáandi, tinnusvartri áferð.
Hentar viðkvæmum og linsunotendum, allar vörur frá SENSAI eru nikkelfríar.
Skolast auðveldlega af með 38°C heitu vatni.
Eftir notkun er Sponge Chief látinn þorna, þá harðnar hann svo ekki þrífast í honum bakteríur. Þegar klúturinn er bleyttur upp aftur með vatni endurheimtir hann mýkt sína og er tilbúinn til notkunar. Hægt er að þrífa klútinn með því að skola hann úr sápunni í þrepi 2 eða í þvottavél við 40°C.
Notkunarleiðbeiningar
Setjið burstann upp að augnhárum og rennið maskaranum upp meðfram þeim, frekar en að nota Zik zak hreyfingar, þá mótast augnhárin fallega. Hreinsið af með því að bera heitt vatn upp að augnhárunum, ekki er þörf á augnfarðahreinsi. Maskarinn fer af í heilu lagi, án þess að leysast upp.
Notið Sponge Chief eins og þvottapoka með hreinsivörum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.