Vörulýsing
Gjafasettið er að andvirði 6.380 kr.
Gjafasett sem inniheldur Cosmic/Orage
Cosmic – Fínt grlitrandi. Kristalltært yfirlakk, blandað þrívíðu glimmeri, mun verða til þess að þú horfir á neglurnar þínar með stjörnur í augunum. Hannað með það í huga að hægt sé að nota það á ýmsan hátt, eitt sér beint á nöglina eða bera það yfir einhvern lit eða liti til að fá smá glitrandi ljóma yfir litinn eða litina þannig að nöglin glitri eins og diskókúla. Orage – Blár með léttri fjólublárri áferð. Umvefðu neglurnar djúpu, blekkenndu undri með sláandi fallegum bláum lit sem er með léttri fjólublárri áferð. Virðulegur litur sem passar við allt og undirstrikar litadýrð árstíðanna. Ákaflega litfögur, geislandi og glitrandi áferð skapar skarpt, hreint útlit sem á eftir að festa sig í sessi sem einkenni þessara árstíða.
Nailberry naglalökkin eru án 12 skaðlegustu efnanna, vegan, næra, anda og hleypa í gegn raka og súrefni. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.
L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru án 12 skaðlegustu efnanna, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”. L’Oxygéné eru án 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum. Þau eru: Formaldehýð Túlín Kemísk kamfóra DPB (skaðleg þalöt) Formaldehýð kvoðu (resin), xylene, ethyl tosylamide, triphenyl phosphate, alkóhóls, parabena, dýraafurða & glútens (sem er ekki sjálfgefið). Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygén.
Notkunarleiðbeiningar
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast 1 – Þvo á sér hendurnar, setja naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi. 2 – Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setjið þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð t.d Acai Elixir. 3 – Berið þunna umferð af Nailberry naglalakki á neglurnar á báðum höndum. 4 – Setja þunna umferð af yfirlakki sem gæti verið Fast dry gloss eða UV Coat. Leyfið nöglunum að þorna.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.