Vörulýsing
Maybelline New York Cloudtopia Cheek & Lip Mousse er léttur, kremkenndur og litsterkur kinnalitur sem einnig er hægt að nota á varir.
Þessi fjölhæfa froðukennda kremformúla er leyndarmálið að ferskum, mjúklega dreifðum kinnalit og fullkomlega lituðum vörum með mjúkri og mattri áferð. Varan blandast óaðfinnanlega og skapar „soft focus“ áhrif sem dregur fram náttúrulegan ljóma og helst falleg allan daginn.
Helstu eiginleikar:
, Endingargóð vara, helst í að 16 klst. á kinnum
, Fjölnota vara fyrir bæði kinnar og varir
, Auðvelt að byggja upp formúluna frá mildum lit í mjög áberandi lit
, Hentar viðkvæmri húð
, Non-comedogenic, stíflar ekki svitaholur og veitir létta, loftkennda áferð
Notkunarleiðbeiningar
Skref 1: Byrjaðu á því að setja á þig þinn uppáhalds farða til þess að fá jafnan og sléttan förðunargrunn.
Skref 2: Bættu vörunni á kinnar eða varir!
Fyrir kinnar:
Klappaðu eða strjúktu Cloudtopia mousse formúlunni varlega á kinnbein. Notaðu fingurgóma eða bursta til að blanda litnum mjúklega út á við og tryggja náttúrulegan kinnalit án skarpra lína.
Fyrir varir:
Berðu Cloudtopia mousse-formúluna beint á varirnar. Notaðu fingurna til að klappa og dreifa léttu formúlunni jafnt yfir varirnar fyrir fallegt, litað og matt útlit.
Ráð frá sérfræðingum:
Leyfðu sköpunargleðinni að njóta sín! Prófaðu að blanda saman mismunandi Cloudtopia litum á kinnar og varir til að skapa þitt einstaka útlit og kraftmikla förðun.

















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.