Vörulýsing
Akrýlneglur sem auðvelt er að setja á eigin neglur og fá þannig hágæða handsnyrtingu. Neglurnar eru sterkar og endast í allt að 7 daga. Þær eru með sérstakri akrýltækni sem gerir þær 10x sterkari en sambærilegar neglur en þær eru einnig sveigjanlegar og ættu því að henta hvaða naglaformi sem er án þess að það myndist loftbólur á milli naglanna. Pakkinn inniheldur 28 neglur, bleikt naglalím, litla naglaþjöl og naglabandapinna. Miðlungslengd – Coffin lögun.
Notkunarleiðbeiningar
Hreinsið neglurnar með naglalakkahreinsi og veljið rétta stærð fyrir hvern fingur. Setjið bæði lím á bakhlið gervinaglarinnar og á þína nögl, passið að setja ekki of lítið lím þá geta myndast loftbólur á milli. Setjið gervinöglina á nöglina, staðsetjið við naglabandið og haldið við í 5 sekúndur. Til þess að taka gervineglurnar af er mikilvægt að þjala þær þannig að hlífðarhúðin á yfirborðinu verði fyrir skemmdum. Síðan er notaður naglalakkahreinsir til að mýkja neglurnar upp og þannig er auðveldara að ná þeim af.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.