Notaleg augnhvíla úr bambus með lavender
Slakaðu á og náðu innri ró með þessari margnota, silkimjúku lúxus augnhvílu úr mjúku bambusefni. Fyllt með ilmandi lavender og hrísgrjónum. Leggstu niður og finndu náttúrlegt innihald mótast mjúklega að útlínum augnsvæðis þíns undir þægilegri þyngd. Róar, endurnærir og mýkir augnsvæðin á meðan mildur ilmurinn af lavender dýpkar slökun. Kosin ein af bestu aughvílunum á markaðnum í dag af vefritinu Mellowed.
Um Hydrea
Hydréa London er leiðandi í baðdekri og býður allt það fíngerða sem húðin í raun þarfnast.
Þetta er línan sem margar af helstu heilsulindum heims kjósa að eiga viðskipti við.
Hydréa London er fremst í hönnun náttúrlegra og framúrskarandi vandaðra húðbursta og annarra húðdekurvara, auk þess sem náttúrlegir svampar eru stór hluti af þessari fallegu baðdekurlínu. Óviðjafnanleg gæði og mikið úrval, ásamt djúpri umhverfisvitund og ábyrgum innkaupum hefur skapað Hydréa London einstaka stöðu heilsumarkaðnum.
Í samvinnu við The Natural Sea Sponge Company sem bjó til Hydréa London á 10 áratugnum, hefur tekist að hanna framúrskarandi góða og fjölbreytta spa / húðumhirðulínu með sérstakri ástríðu fyrir smáatriðum til að tryggja hámarks árangur. Hér skipta nefnilega smáatriðin öllu máli og vöruþróun er hvergi sambærileg og hjá Hydréa London. Línan spannar allt frá mismunandi stórum og hörðum eða mjúkum húðburstum til fíngerðra augnsvampa og frá nuddhönskum til fótaþjala úr viði og vikri. Hárin í húðburstunum eru náttúrleg, svamparnir úr sjálfbærri uppsprettu, viðurinn FSC vottaður og hanskarnir jafnan úr bambus eða öðrum náttúrlegum efnum sem öll eru umhverfisvæn. Enda löngu tímabært að hanna aðeins það besta fyrir stærsta líffæri mannsins, húðina. Hydréa London hlaut á þessu ári “Good Brand Award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni af hinu virta tímariti Sublime. Meðal þeirra sem njóta þess að bjóða upp Hydréa London eru Planet Organic, Liberty og Harrods og mörg af helstu heilsuhótelum hótelum heims.
Notkunarleiðbeiningar
Helstu kostir:
-Gert úr 60% sjálfbærum bambus og 40% bómull
– Náttúrulega bakteríudrepandi
– Þægileg þyngd
– Lyktarþolin
– Án ónæmisvalda
– Hleypir í gegn hita og raka
– Lunga mjúk
– Andar
– Notalegt
– Sterk og endingargóð
– Auðvelt að þvo á allt að 50 gráðum
– Má bæta í lavender dropum eftir smekk
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.