Vörulýsing
1.Original coffee scrub Upprunalegi skrúbburinn frá Frank Body sem gerði merkið vinsælt. Kaffiskrúbbur með léttum appelsínu ilm. 100% náttúrulegur, vegan og vinnur einstaklega vel á bólur, ör, appelsínuhúð og slit. Skrúbburinn inniheldur blöndu af gróf möluðu kaffi, E-vítamíni og olíum sem eru fullar af andoxunarefnum sem lætur húðina verða frísklegri og silkimjúka. Innihald m.a. Malað Robusta kaffi, möndlu olía, E-vitamín og sjávarsalt. Ath. Getur innihaldið hnetur, ekkert paraben, pegs eða phthalates Ilmur: Appelsínu Frappuccino. 2.Glycolic Body Scrub Líkamsskrúbbur sem inniheldur Glýkólsýru sem vinnur einstaklega vel á útbrotum og keratosis pilaris. Skrúbburinn er einstaklega auðveldur í notkun og skilur húðina eftir mýkri, sléttari og hreinni. Formúlan inniheldur virkar AHA sýrur sem hreinsa og slétta húðina hraðar, vinna á útbrotum/bólum og koma í veg fyrir að þær komi aftur. Skrúbburinn inniheldur einnig Witch Hazel sem róar húðina og dregur úr roða, Niacinamide sem kemur jafnvægi á húðina og Eucalyptus sem gefur ferskan ilm.
1.Original coffee scrub MALAÐ ROBURSTA KAFFI
Blanda af möluðu kaffi sem gefur húðinni fullkomna ljómandi húð.
SJÁVARSALT Hjálpar til við að við að skúbba þurra og flagnandi húð án ertingar. Bakteríudrepandi og vinnur gegn bólum og útbrotum
E-VÍTAMÍN
Nauðsynlegt vítamín sem verndar húðina gegn
sindurefnum, er afar græðandi og vinnur vel á örum og slitum. 2.Glycolic Body Scrub Glýkólsýra og mjólkursýra er kraftmikil tvenna sem slípa efsta húðlagið, tekur óhreinindi, mengun í húð gefur þér bjartari og sléttari húð.
Witch Hazel er náttúrulegt sótthreinsandi efni sem dregur úr bakteríum, róar húðina, dregur úr roða og bólgum. Einnig er þetta innihaldsefni þekkt fyrir að minnka svitaholur.
Vikur er áhrifarík bergtegund sem hjálpar til við að skrúbba húðina, kemur í veg fyrir þurrk og gefur húðinni fallegan ljóma.
Níasínamíð er virkt innihaldsefni sem kemur húðinni í jafnvægi, kemur í veg fyrir öldrunareinkenni og dregur úr bólum/acne
1.Original coffee scrub
Skref 1: Afklæddu þig og skelltu þér í sturtu. Þú þarft ekki föt fyrir næstu skref
Skref 2: Þegar húðin er orðin rök skaltu þekja líkamann með kaffiskrúbbnum. Skrúbbaðu með hringlaga hreyfingum í nokkrar
mínútur, frá toppi til táar.
Skref 3: Einbeittu þér að þeim svæðum sem þú vilt leggja áherslu á með því að verja lengri tíma á þeim svæðum, t.d. húðslit, ör eða appelsínuhúð
Skref 4: Skolaðu skrúbbinn af líkamanum en mundu að þú ert alltaf falleg, sama hvað.
Hentar öllum húðgerðum
Notist 2-3 í viku 2.Glycolic Body Scrub Takið smá magn af skrúbbnum og skrúbbið blauta húðina. Leggið áherslu á vandamálasvæðin og nuddið vel, látið skrúbbinn liggja á húðinni í mínútu áður en hann er skolaður af húðinni. Notið alltaf sólarvörn með vörum sem innihalda sýrur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.