Vörulýsing
Kóreska leiðin að fullkominni áferð húðarinnar liggur í hátækninni. Þessi margvirka formúla inniheldur breytanleg litarefni sem aðlaga sig að þínum húðtón og draga úr litaójöfnuð í húðinni.
CC Red Correct er margnota vara sem:
1.Inniheldur græn litarefni sem leiðrétta roða í húðinni.
2.Inniheldur breytanleg litarefni í hylkjum sem aðlaga sig að náttúrulegum litatón húðarinnar og leiðrétta og hylja ójöfnur í húð.
3.Gefur þunna þekju sem aðlagast þínum húðlit.
4.Eykur ljóma og raka í húðinni.
5.Veitir breiðvirka SPF 25 sólarvörn. CC Red Correct formúlan er græn á litinn en breytist og aðlagar sig að náttúrulegum húðlit þegar hún er borin á.
Græni liturinn dregur úr sýnileika á roða í húðinni en formúlan gefur jafna og náttúrulega áferð án þess að skilja eftir sig grænan tón á húðinni. Inniheldur tígrisgrasaseyði sem veitir góðan raka og eykur útgeislun húðarinnar. Roði og litaójöfnur í húðinni verða minna sýnilegar við notkun og húðin fær á sig náttúrulega og fallega áferð.
Prófað undir eftirliti húðlækna. Stíflar ekki húðholurnar.
Virk innihaldsefni:
– Glýserín (e. Glycerin) : Mýkjandi og mjög rakagefandi.
– Tígrisgrasaseyði (e. Centella asiatica Extract) : Róar húðina og kemur í veg fyrir ótímabær öldrunarmerki, eykur stinnleika húðarinnar og teygjanleika.
– E – vítamín : Andoxunarefni
– Græn litarefni (e. Green pigments) : Litaleiðrétta húðina og draga úr sýnileika á rauðum lit í húðinni.
Hverjum hentar varan?
Hentar öllum húðtegundum. Rósroði. Roði.
Notkunarleiðbeiningar
Berið þunnt lag á andlitið á sama hátt og andlitskrem er borið á húðina. Nuddið kremið vel inn í húðina þar til liturinn hefur aðlagast þínum húðlit fullkomlega.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.