Gjafasett að andvirði 41.432 kr.
Gjafasettið inniheldur fulla stærð af Dr. Dennis Gross Skincare – Vitamin C + Lactic 15% Vitamin C Firm & Bright Serum, fulla stærð af Dr. Dennis Gross Skincare – Ferulic + Retinol Overnight Wrinkle Treatment Serum og 3 stk af Dr. Dennis Gross Skincare – Alpha Beta® Extra Strength Daily Peel 3 Stk
Dr. Dennis Gross Skincare – Vitamin C + Lactic 15% Vitamin C Firm & Bright Serum
Andlitsserum sem ríkt er af andoxunarefnum og öflugu C-vítamíni í 15% styrkleika auk mjólkursýru til að auka upptöku og virkni formúlunnar.
Þannig bætir serumið sjáanlega ásýnd litamisfellna, ójafnan húðtón, teygjanleika og þéttleika húðarinnar auk þess sem það dregur úr ásýnd fínna lína, hrukkna og gerir yfirbragð húðarinnar líflegra.
Þetta serum hentar öllum húðgerðum.
Lykilefni:
L-Askorbínsýra
Ávaxtasýra fengin úr ávöxtum og grænmeti en askorbínsýra er hreinasta formið af C-vítamíni. Þetta öfluga andoxunarefni verndar og gerir við húðfrumur auk þess að örva kollagenframleiðslu sem leiðir af sér þéttari húð. C-vítamín hlutleysir einnig sindurefni og getur að auki lagfært skemmdir sem þau kunna að valda.
Mjólkursýra
AHA-sýra sem eykur upptöku húðarinnar á húðvörunni og virkni hennar, örvar endurnýjun húðfrumna, eykur rakastig og hjálpar við að gera við og vernda yfirborð húðarinnar með því að óvirkja sindurefni.
Alfa-tókóferól
Hreint E-vítamín sem finnst náttúrulega í möndlum, jarðhnetum og safflúr en það er mest fituleysanlegasta andoxunarefnið í húð manna.
Þetta efni er bólgueyðandi með ljósverndandi eiginleikum, hreinsar sindurefni sem útfjólubláir geislar valda til að vernda frumuhimnur,
dregur í sig útfjólubláa orku og hamlar niðurbrot lípíða af völdum útfjólublárra geisla.
Alfa-tókóferól er endurmyndað af og vinnur með hinu vatnsleysanlega andoxunarefni l-askorbínsýru til að hreinsa burt ýmsar gerðir sindurefna.
Virkni klínískt sönnuð eftir 12 vikur til að:
Draga úr ásýnd fínna lína og hrukkna.
Sjáanlega bæta slappleika og áferð húðarinnar.
85% þátttakenda sáu betrumbætingu sólarskemmda á húðinni eftir 4 vikur.
Notkunarleiðbeiningar:
Einu sinni á dag skaltu bera 4-6 dropa yfir hreina húðina.
Serumið kann að valda sviða þar til húðin hefur vanist því.
Fyrir hámarksárangur skaltu bera serumið á húðina á eftir Dr. Dennis Gross Skincare®-sýrumeðferð.
Dr. Dennis Gross Skincare – Ferulic + Retinol Overnight Wrinkle Treatment Serum
Takstu á við djúpar hrukkur og ójafnt yfirbragð húðarinnar með Advanced Retinol + Ferulic Overnight Wrinkle Treatment frá Dr. Dennis Gross Skincare. Formúlan er hönnuð til að nota sem næturmeðferð en hún byggir upp prótein húðarinnar til að veita sjáanlega lyftingu, sléttir úr djúpum hrukkum, jafnar húðtón og áferð auk þess að bæta rakaforða húðarinnar. Samblanda retínóls og sefandi plöntuefna gera við og endurnýja efsta lag húðarinnar svo þú færð unglegri húð á meðan þú sefur.
Helstu innihaldsefni:
Víxlvirkt-retínól og hjúpað retínól: Sléttir áferð húðarinnar, lýsir dökka bletti og örvar kollagenframleiðslu.
Bakuchiol: Náttúrulegt efni sem býr yfir retínól-líkum áhrifum án ertingar og styrkir hornlag húðarinnar.
Ferúlík-sýra: Vinnur á móti ertandi áhrifum retínóls og dregur úr sólarskemmdum.
Helstu ávinningar:
Sjáanlega lyftir húðinni og sléttir hrukkur.
Jafnar húðtón og áferð.
Bætir rakaforða.
Öruggt fyrir viðkvæma húð.
Notkunarleiðbeiningar
Notist að kvöldi til. Nuddaðu 2-3 pumpum af vörunni á hreina og þurra húð á kvöldin. Fyrir hámarksárangur skaltu nota vöruna á eftir Dr. Dennis Gross Skincare-sýrumeðferð og fylgdu svo eftir með andlitskremi, ef þess er þörf.
Dennis Gross Skincare – Alpha Beta® Extra Strength Daily Peel 3 Stk
Fljótvirkandi meðferð til daglegrar notkunar í tveimur skrefum fyrir áhrifaríka útkomu heima. Sterkasta heimameðferðin frá Dr. Dennis Gross inniheldur 7 sýrur, ásamt andoxunarefnum og vítamínum sem leysa upp dauðar húðfrumur ásamt umfram húðfitu og óhreinindum ásamt því að jafna húðtón og áferð.
Endurvektu ljóma, minnkaðu ásýnd hrukkna og svitahola með sterkustu útgáfu af sýrumeðferðinni sem Dr. Dennis Gross þróaði og notar á skjólstæðinga sína á stofunni í New York. Þessi einkaleyfisvarða tveggja skrefa formúla er auðveld og örugg til heimanotkunar, án þess að þú þurfir batatíma.
Skref 1 er fyllt endurnærandi og kraftmiklum en mildum endurnýjandi sýrum. Skref 2 stjórnar virkni alfa hýdroxý-sýranna, vinnur gegn öldrunarmerkjum og nærir húðina. Þar að auki helst húðin í auknu jafnvægi, verður sléttari og ljómandi – fullkomlega undirbúin fyrir áhrifaríkar húðvörur sem á eftir fylgja. Þú mátt búast við því að sjá færri fínar línur, jafnari húðtón og áferð og minni svitaholur. Inniheldur samsetningu 7 sýra, fyrir aukna virkni.
Helstu innihaldsefni:
Lykilinnihaldsefni í skrefi 1:
- 7 Alpha Beta®-sýrur leysa upp dauðar húðfrumur ásamt því að tóna og slétta húðina.
- Kamilla hefur bólgueyðandi áhrif sem hjálpar til við að sefa húðina.
Lykilinnihaldsefni í skrefi 2:
- Retínól hjálpar til við að draga úr fínum línum og hrukkum auk þess að bæta rakastig og teygjanleika húðarinnar.
- Grænt te er náttúrulegt andoxunarefni sem verndar húðina gegn sindurefna og umhverfismengun.
Í neytendarannsókn byggðri á daglegri notkun, eftir 28 daga:
- 96% voru því sammála að húðin virkaði unglegri.
- 92% voru því sammála að húðin bjó yfir auknum þéttleika og ljóma.
- 90% voru því sammála að húðin virkaði bjartari og húðtónn þeirra væri jafnari.
Notkunarleiðbeiningar
Fyrir hámarksárangur skal nota Alpha Beta® Extra Strength Daily Peel kvölds eða morgna. Þeir sem eru að nota sýrumeðferð í fyrsta sinn geta notað vöruna annan hvern dag á meðan húðin aðlagast virkninni. Nuddaðu skrefi 1 á hreina og þurra húðina þar til skífan er þurr. Láttu tvær mínútur líða áður en þú endurtekur aðferðina með skrefi 2. Til að fá enn betri útkomu skaltu fylgja þessu eftir með serumi og rakakremi að eigin vali frá Dr. Dennis Gross Skincare.™
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.