Við kynnum með stolti Leyniperlu Beautyboxið. Vörurnar í Leyniperlu Beautyboxinu eiga það sameiginlegt að vera dásamlegar gersemar sem okkur finnst allt of fáir vera að tala um.
Í Leyniperlu Beautyboxinu má finna fimm vörur, eina í sölustærð og fjórar lúxusprufur. Boxið er einstaklega veglegt en vörurnar í boxinu eru að andvirði 17.812 kr. Í boxinu eru tvær húðvörur, ein förðunarvara, ein líkamsvara og ein hárvara.
Vörurnar í Leyniperlu Beautyboxinu eru allar mildar en sinna starfi sínu fullkomlega. Þær eru ýmist nýjungar sem við viljum kynna betur fyrir ykkur eða klassískar perlur sem að við viljum minna á.
Að vana er boxið í takmörkuðu magni, og þegar það er uppselt þá kemur það því miður ekki aftur.
Vinsamlega athugið að hægt verður að sækja boxið í fyrsta lagi fimmtudaginn 21. mars og fara sendar pantanir með boxum frá okkur á fimmtudaginn líka.
Ef þú pantar fleiri vörur með boxinu þá fer öll sendingin saman um leið og boxið kemur út.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.