Lýsing
Öflug lýsingarmeðferð fyrir dökka bletti af völdum sólar og aldurs. Dregur úr og fjarlægir dökka bletti og kemur í veg fyrir myndun nýrra. Formúlan jafnar húðlit og gefur húðinni aukinn ljóma.
Öflug lýsingarmeðferð fyrir öldrunarbletti og bletti sem hafa myndast eftir bólgur og sól. Öldrunar- og sólarblettir eru yfirleitt ljósbrúnir, brúnir eða mjög dökkir, flatir, hring og egglaga með reglulegum brúnum. Þeir koma fram einn og einn eða í hópum á svæði sem eru berskjölduð fyrir sólinni (andlit, hendur, háls, handleggir og bak). Þeir hverfa ekki yfir vetrartímann, heldur eru til staðar allan ársins hring. Þeir eru afleiðing af uppsöfnun á tveimur litarefnum húðarinnar: melaníns og lipfuscin. Þeir orsakast af of mikilli sól og/eða mengun.
Meðferðin dregur úr og fjarlægir dökka bletti í húðinni og kemur í veg fyrir myndun nýrra með blöndu af virkum innihaldsefnum, auk einkaleyfisvarðrar B-CORE 221 TM lýsingartækni. Örsmá hylki bera virka efnið í grunnlag húðarinnar fljótt án þess að neinu af efninu sé sóað. Hylkin bindast eingöngu við sortufrumur, án þess að sóa tíma eða virkni í annað, þar smýgur hylkið inn og sleppir frá sér 100% af innihaldinu til þess að koma af stað fljótu og áhrifaríku lýsingarferli. Bio Forte L-Tigo inniheldur meðal annars Kojic Sýru, Stöðugt C vítamín, Sclareolide, Marine exopolysaccharides, fitusimað þykkni úr vatnakarsa og Soja Isoflavone. Sjáanlegur árangur á fjórum vikum.
Notkunarleiðbeiningar
Berið í litlu magni á andlit og háls, nuddið varlega þar til kremið er smogið alveg inn í húðina. Notkun tvisvar á dag í minnst 8 vikur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.