Vörulýsing
Marine Glow Toner er rakagefandi og róandi andlitsvatn sem gefur húðinni ferskleika strax eftir hreinsun og undirbýr hana fyrir næstu skref húðumhirðunnar. Létt formúlan hjálpar til við að endurheimta rakajafnvægi húðarinnar svo hún öðlast mýkt, jafnvægi og náttúrulegan ljóma.
Formúlan sameinar ChitoCare® Repair, sem byggir á íslensku sjávarkítósani, og virk innihaldsefni sem styðja við heilbrigt yfirbragð húðarinnar. Aloe vera og allantóín hjálpa til við að róa húðina, á meðan kollagen og kísill stuðla að mýkri áferð og náttúrulegum ljóma. Nornahesli stuðlar að bættri ásýnd húðhola og fersku yfirbragði.
Með ChitoCare Repair®, sem er einstök einkaleyfisvarin innihaldsefnablanda úr hágæða sjávarkítósani með kraftmikla andoxunarvirkni sem styður við endurnýjun húðarinnar, bætir rakastjórnun, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og veitir húðinni aukna vernd.
97% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna
Prófað af húðlæknum
Fyrir hverja er varan: Andlitsvatnið hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð. Tilvalið til daglegrar notkunar eftir hreinsun.
Notkunarleiðbeiningar
Berið á hreina húð á andliti og hálsi með bómullarskífu eða lófum og þrýstið létt inn í húðina. Formúlan er létt og fer auðveldlega inn í húðina. Notið kvölds og morgna eftir hreinsun sem fyrsta rakagefandi skrefið í húðumhirðunni.











Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.