Vörulýsing
Marine Glow Cleanser er silkimjúk hreinsimjólk sem fjarlægir farða, óhreinindi og umfram fitu á áhrifaríkan en einstaklega mildan hátt. Kremkennd formúlan hreinsar án þess að þurrka húðina eða raska náttúrulegu rakajafnvægi hennar og skilur hana eftir mjúka, vel nærða og þægilega.
Formúlan sameinar ChitoCare® Repair, sem byggir á íslensku sjávarkítósani, og virk innihaldsefni sem styðja við mýkt og rakajafnvægi húðarinnar. Skvalan viðheldur mýkt, á meðan kollagen og kísill stuðla að sléttari áferð og náttúrulegum ljóma. Saman skilja þau húðina eftir mjúka, slétta og með heilbrigt yfirbragð.
ChitoCare Repair® er einstök einkaleyfisvarin innihaldsefnablanda úr hágæða sjávarkítósani með kraftmikla andoxunarvirkni sem styður við endurnýjun húðarinnar, bætir rakastjórnun, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og veitir húðinni aukna vernd.
99,5% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna
Prófað af húðlæknum
Fyrir hverja er varan
Hreinsimjólkin hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð. Tilvalin til daglegrar hreinsunar.
Notkunarleiðbeiningar
Berið á þurra eða raka húð á andlit og augnsvæði með mjúkum hringlaga hreyfingum. Hreinsið af með blautri bómullarskífu eða skolið af með vatni. Notið kvölds og morgna sem fyrsta skref í rútínunni.











Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.