Vörulýsing
Djúphreinsun og endurnýjun
Milt og nærandi sjampó sem djúphreinsar hárið og hársvörðinn á áhrifaríkan hátt án þess að raska náttúrulegu jafnvægi þess. Formúlan inniheldur kítósan, kollagen og kísil – náttúruleg hráefni úr hafinu sem styrkja hárið og róa hársvörðinn, bæta raka og skilja eftir glansandi hreina og ferska áferð.
INNSÆI ber hreinan og róandi ilm sem vekur skilningarvitin. Ocean Breeze, innblásinn af tærri hafgolunni við Íslandsstrendur, mætir mildum og grænum tónum af sítrónugrasi. Við hverja notkun fyllist rýmið af fersku og róandi andrúmslofti sem minnir á sjávarloft og kyrrð náttúrunnar. 95% náttúruleg innihaldsefni.
Notkun: Hentar til daglegrar notkunar. Berið í rakt hárið, nuddið vandlega í hár og hársvörð og skolið svo vel úr hárinu.
Fyrir hvern: Sjampóið hentar öllum hárgerðum og nærir sérstaklega þurran hársvörð.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.