Lýsing
Öflug lýsingarmeðferð fyrir dökka bletti eftir hormónabreytingar. Dregur úr og fjarlægir dökka bletti og kemur í veg fyrir myndun nýrra. Formúlan jafnar húðlit og gefur húðinni aukinn ljóma.
Öflug lýsingarmeðferð fyrir hormónabletti og bletti sem hafa myndast eftir bólgur. Dökkir hormónablettir eru dreifðir, óreglulegir dökkir blettir. Þeir birtast yfirleitt samhverfir á báðum hliðum andlitsins á svæðum sem eru berskjölduð fyrir sólinni (enni, höku, nef, kinnar og efri vör). Þeir orsakast af sólinni auk hormóna tengdra þátta, álags, ofnæmisviðbragða eða lyfja. Breyting í hormónakerfinu ásamt varnarleysi gagnvart sólarljósi virkjar alpha-MSH hormónið sem framkallar nýmyndun melaníns. Þessu ferli er náttúrulega stjórnað með MSH-hamlandi efni sem stöðvar þetta ferli. Bio 10 Forte M-lasma virkar því eins og MSH-hamlandi efni.
Meðferðin dregur úr og fjarlægir dökka hormónabletti í húðinni og kemur í veg fyrir myndun nýrra með blöndu af virkum innihaldsefnum, auk okkar einstöku B-CORE 221 TM lýsingartækni. Örsmá hylki bera virka efnið í grunnlag húðarinnar fljótt án þess að neinu af efninu sé sóað. Hylkin bindast eingöngu við sortufrumur, án þess að sóa tíma eða virkni í annað, þar smýgur hylkið inn og sleppir frá sér 100% innihaldsins til þess að koma af stað fljótu og áhrifaríku lýsingarferli. Bio 10 Forte M-lasma inniheldur meðal annars Kojic Sýru, Stöðugt C vítamín, Sclareolide, Marine exopolysaccharides og Langsat peel extract. Sjáanlegur árangur á fjórum vikum.
Notkunarleiðbeiningar
Berið í litlu magni á andlit og háls, nuddið varlega þar til kremið er smogið alveg inn í húðina. Notkun tvisvar á dag í minnst 8 vikur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.