Vörulýsing
SUPER BB : Bæði dagkrem og farði í einni vöru. Háþróuð vara til þess að bæði hylja og bæta áferð húðarinnar án þess að hún líti út fyrir að vera förðuð. Afhjúpaðu þína óaðfinnanlegu húð !
Farði: Gefur miðlungs til mikla þekju. Meiri þekja heldur en í upprunalega BB kreminu. Super BB kremið felur roða, dökka bletti og ójöfnuð í húðinni. Þökk sé léttu og þægilegu áferðinni verður húðin náttúruleg með flauelslíka áferð. Húðin verður með fullkomlega jafna áferð í kjölfarið.
Húðumhirða: Super BB sameinar tvö kóresk ofur-innihaldsefni: hvítt Gingseng og gerjað Gingseng blóm. Formúlan gefur húðinni raka og sléttari húð. Til þess að minnka ójöfnur í húðinni (bólur, svitaholur, fílapensla, osfrv) var Niacinamide bætt við í formúluna, kröftugt innihaldsefni til að fá hreinni húð.
Þú getur núna, þökk sé Super BB, hugsað vel um húðina og falið ójöfnur á sama tíma.
Veitir breiðvirka SPF 20 sólarvörn. Prófað undir eftirliti húðlækna. Stíflar ekki húðholur.
Virk innihaldsefni:
– Blanda úr hvítu Gingsengi (White Gingseng Complex): Veitir andoxun, sléttir úr hrukkum og fínum línum, dregur úr öldrunarummerkjum, gefur raka, styrkir varnarlag húðarinnar, verndar og róar húðina.
• Gingseng rótarseyði og gerjað blómaseyði (Panax gingseng)
• Lakkrísrótarseyði (e. Licorice root extract (Glycyrrhiza glabra)
• Villt Yamrótarseyði (e.Wild yam root extract)
• Kigelia ávaxtarseyði (e.Kigelia fruit extract)
• Klóeftingsseyði (e.Horsetail extract)
– Níacinamide (e.Niacinamide) : Þekkt fyrir að draga úr ójöfnum í húð.
– Jojoba fræolía (e.Jojoba seed oil) : Kemur í veg fyrir þurrk í húðinni. Nærir og mýkir húðina.
Hverjum hentar varan?
Hentar öllum húðtegundum.
Notkunarleiðbeiningar
Best er að nota lítið magn af vörunni í einu og vinna litinn út frá miðju andlitsins. Þú getur notað Super BB annaðhvort sem part af þinni daglegu húðrútínu eða eftir þörfum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.