Vörulýsing
Þægilegt byrjendasett fyrir þá sem vilja vaxa heima án sérstaks vaxhitara. Settið inniheldur fjölnota sílikonbolla sem má setja beint í örbylgjuofn, sílikonspaða og Acai Berry harðvaxperlur. Bollinn er með handfangi sem auðveldar meðhöndlun. Vaxið grípur bæði fín og gróf hár og fjarlægir þau frá rót en það harðnar á húðinni og því þarf enga vaxstrimla. Vaxið grípur bæði fín og gróf hár og fjarlægir þau frá rót. Hentar til notkunar bæði á andlit og líkama, meðal annars á fætur, handleggi og bikinísvæði. Vaxformúlan inniheldur meðal annars acai-þykkni, jojobaolíu, hveitikímolíu, ólífuolíu og E-vítamín.
Notkunarleiðbeiningar
Setjið æskilegt magn af vaxperlum í sílikonbollann. Hitið í örbylgjuofni í stuttum lotum og hrærið á milli þar til vaxið hefur náð þykkri, karamellulíkri áferð. Prófið ávallt hitastig vaxsins á litlu húðsvæði áður en það er borið á (gott að setja á innanverðan úlnlið). Húðin skal vera hrein og þurr og bestur árangur fæst þegar hárin eru um 6 mm eða lengri. Berið þykkt lag af vaxi á í vaxtarstefnu háranna. Látið vaxið kólna þar til það er orðið fast í sér en enn sveigjanlegt. Haldið húðinni strekktri og dragið vaxið af hratt og ákveðið gegn vaxtarstefnu háranna og samsíða húðinni.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.