Vörulýsing
Háreyðingarkrem sem fjarlægir líkamshár með þægilegum hætti á örfáum mínútum. Kremið leysir upp hárin við yfirborð húðarinnar og skilur húðina eftir mjúka og slétta. Með kreminu fylgir spaði sem auðveldar bæði ásetningu og að fjarlægja kremið. Formúlan inniheldur potassium thioglycolate sem hjálpar til við að leysa upp hárin ásamt urea og E-vítamíni sem hjálpa til við að viðhalda mýkt húðarinnar.
Notkunarleiðbeiningar
Gerið húðpróf á litlu svæði 24 klukkustundum fyrir fyrstu notkun. Kreistið túbuna létt fyrir notkun til að blanda formúlunni. Berið jafnt og þykkt lag af kreminu á húðina með spaðanum þannig að hárin séu alveg hulin. Ekki nudda kreminu inn í húðina. Athugið lítið svæði eftir 7 mínútur og ef hárin losna ekki auðveldlega má láta kremið vera örlítið lengur en aldrei lengur en samtals 10 mínútur. Fjarlægið kremið varlega með spaðanum gegn vaxtarstefnu háranna og skolið húðina vandlega með volgu vatni (ekki með sápu) og þurrkið varlega.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.