Vörulýsing
Háþróað serum sem nýtir eiginleika tveggja nýstárlegra sérhannaðra efnablanda sem vernda húðina gegn öldrun frumna og sviptir hulunni af náttúrulegum ljóma hennar:
1. Verndar og framlengir æskuljómann, þökk sé sérhannaðri efnablöndu andoxunarefna og sefandi innihaldsefna, þ.m.t. nýjum sérstökum Black Rose-sameindakjarna, sem inniheldur antósýanín, öflugar andoxunarsameindir, sem berjast gegn skaðlegum umhverfisþáttum á borð við útfjólubláa geisla, mengun og daglega streitu. Samvirkni blöndunnar við klóþangskjarna og B12-vítamín tryggir góða vörn og sefar húðina.
2. Eflir virkni allra hinna fjögurra þátta sem stuðla að æskuljóma með Radiant Youth-tækni:
⋅ Fylling: þökk sé hýalúrónsýru sem veitir góðan raka og bíosakkaríðlausnar sem örvar samtengingu kollagens og eykur fyllingu húðarinnar;
⋅ Áferð: með mildri míkróhúðhreinsun með sítrónukjarna;
⋅ Lífsþróttur: með kjarna úr rauðum vínviði til að fríska upp á og byggja upp frísklega húð;
⋅ Ljómi: með einkornshveitikjarna til að hámarka endurkast og dreifingu ljóss.
Árangursrík tvíþætt formúla, sem vernduð er gegn lofti og ljósi fram að fyrstu notkun þökk sé háþróaðri umbúðartækni. Þetta nýstárlega varðveislukerfi tryggir einstakan árangur hvað varðar hina fjóra þætti unglegs ljóma.
Húðin sýnir strax merki um að vera fyllri, mýkri og sléttari. Húðin fær frísklegra og bjartara yfirbragð.
Serumið endurvirkjar, framlengir og ýtir undir æskuljóma dag frá degi. Húðin virðist teygjanlegri. Áferð hennar er betri, svitaholur verða minna áberandi og húðliturinn er jafnari. Sterkari og ferskari húð með ljóma sem yngir upp húðina.
Serumið, sem er ofurlétt, ekki olíukennt og klístrast ekki, veitir húðinni rósableikan blæ og ferskleika um leið og það er borið á, smýgur hratt inn í húðina og veitir henni tafarlausa þægindatilfinningu. Black Rose Concentrate Radiant Youth Serum býður upp á bætt afköst og virkni þegar það er notað með Skin Infusion Cream.
Ávanabindandi og einkennandi lykt Black Rose-línunnar – úr ilmkjarnaolíum úr rósum, magnólíum, blágresi og maírósarvatni – vekur skynfærin og veitir þér tafarlausa vellíðunartilfinningu.
Ávinningur innihaldsefna
⋅ Black Rose sameindakjarni: andoxunarefni
⋅ Klóþangskjarni: andoxunarefni
⋅ B12-vítamín: sefandi
⋅ Bíosakkaríðlausn: rakagefandi og fyllandi; örvar náttúrulega samtengingu hýalúrónsýru og kollagens
⋅ Hýalúronsýra með mikla mólþyngd: rakagefandik, fyllandi
⋅ Glýserín úr jurtaríkinu: mýkjandi
⋅ Sítrónukjarni: blíð míkróhúðhreinsun
⋅ Rauðvínviðskjarni: frískandi
⋅ Einkornshveitikjarni: eykur ljóma
Notkunarleiðbeiningar
Virkjunarleiðbeiningar – fyrsta notkun:
Fjarlægðu álfilmuna og ýttu fimm sinnum til að virkja formúluna. Hristu kröftuglega og fjarlægðu síðan hvíta tappann. Skrúfaðu dropateljarann á þar til hann smellur. Serumið er nú tilbúið til notkunar.
Opnaðu það til að fá sjálfkrafa fullkominn skammt til að bera á andlit og háls.
Notkunarleiðbeiningar:
Berðu Black Rose Radiance Concentrate Radiant Youth Serum kvölds og morgna á hreina og þurra húð á andliti og hálsi, áður en þú berð á þig Black Rose Skin Infusion Cream.
Nuddaðu mjúklega þar til serumið er að fullu komið inn í húðina með því að nota „fiðrildaorkideu“-aðferðina.
Notist innan 6 mánaða eftir opnun til að tryggja ferskleika og verkun serumsins eftir virkjun.



















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.