Vöruyfirlit – útskýring:
Þetta tæki byggir á sömu örstraums-tækni og er samþykkt af Matvæla- og lyfjaeftirlitsstofnun Bandaríkjanna (FDA) til að örva stærri yfirborðssvæði á andliti og hálsi. Þannig vinnur tækið á mildan hátt við að skerpa útlínur andlitsins og tóna það, ásamt því að draga úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Einföld hönnunin er einn helsti kostur NuFACE Mini. Með NuFace Mini getur þú framkvæmt 5 mínútna andlitslyftingu hvar og hvenær sem er.
Svona virkar það – útskýring:
NuFACE Mini örvar stærri yfirborðssvæði á andliti og hálsi með mildum örstraumi, sem nær undir yfirborð húðarinnar til að bæta útlínur andlitsins, húðtón og ásýnd fínna lína og hrukkna.
-Skjótur árangur
-Aukinn árangur með reglulegri notkun
-Öruggt fyrir daglega notkun
-Virkni sönnuð á klínískan máta
-Samþykkt af Matvæla- og lyfjaeftirlitsstofnun Bandaríkjanna (FDA)
Þetta tæki byggir á sömu örstraums-tækni og er samþykkt af Matvæla- og lyfjaeftirlitsstofnun Bandaríkjanna (FDA) til að örva stærri yfirborðssvæði á andliti og hálsi. Þannig vinnur tækið á mildan hátt við að skerpa útlínur andlitsins og tóna það, ásamt því að draga úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Einföld hönnunin er einn helsti kostur NuFACE Mini. Með NuFace Mini getur þú framkvæmt 5 mínútna andlitslyftingu hvar og hvenær sem er.
85% neytenda upplifðu bætingu í mótun andlitslína*
77% neytenda greindu frá aukinni tónun andlitsins*
80% neytenda sögðu húð þeirra mýkri*
Líkamsrækt fyrir andlitið
Venjulegar húðvörur vinna á yfirborði húðarinnar en Nuface fer alveg niður í andlitsvöðvana og gefur því meiri lyftingu og vinnur betur á línum.
Notkunarleiðbeiningar.
Sjáðu til þess að húð þín sé hrein og þurr. Næst skaltu bera Aqua Gel Activator Primer á meðferðarsvæðið í sambærilegu magni og um andlitsmaska væri að ræða.
Renndu NuFACE Mini í strokum upp á við, með miðlungs þrýstingi fyrir andlit og léttum þrýstingi yfir hálsinn.
Með einungis 5 mínútna notkun á dag muntu taka eftir skjótri og langvarandi betrumbætingu húðarinnar.
ÞETTA ER SVONA AUÐVELT
Skref 1: Hreinsaðu húð þína með olíulausum hreinsi og berðu svo NuFACE Aqua Gel Gel Primer eða Firming and Brightening Silk Créme á hálsinn fyrst. Berðu gelið eða kremið svo á hvert svæði fyrir sig.
Skref 2: Kveiktu á NuFACE-tækinu og veldu styrkleika.
Skref 3: Renndu tækinu yfir húð þína. Byrjaðu á kjálkanum og dragðu tækið að eyrunum. Hættu þegar tækið pípir. Endurtaktu þrisvar sinnum á báðum hliðum hálsins.
Skref 4: Endurtaktu hreyfinguna á kjálkalínum, kinnum og enni. Berðu gelið eða kremið á hvert meðferðarsvæði fyrir sig fyrir notkun tækisins.
Skref 5: Nuddaðu gelinu eða kreminu, sem eftir verður, inn í húðina eða hreinsaðu það af.
Athugið: Ef þú finnur fyrir náladofa í húðinni á meðan meðferð stendur skaltu bera meira af gelinu eða kreminu á tiltekið meðferðarsvæði. Ef ekki er nægt magn af gelinu eða kreminu þá fer örstraumurinn ekki í gegnum húðina.
NuFACE – Mini + Starter Kit Inniheldur
- MINI+ Smart Petite Facial Toning Device
- Aqua Gel Activator 1.69 Oz
- Silk Crème Activator 0.5 Oz
- Bursta til að bera gelið á.
- Hleðslutæki
- Notkunarleiðbeiningar
Hverjir ættu ekki að nota NuFACE Mini?
Ekki skal nota NuFACE Mini ef þú ert ófrísk, með gangráð, ígrædd rafræn tæki, ert með flogaveiki eða með virkt krabbamein. Hafir þú læknisfræðilegar áhyggjur skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar tækið.
Nuface Smart App (Vinsamlega athugið að eins og er þá virkar NuFace appið því miður ekki í Evrópu, en við bíðum frekari fregna og látum vita um leið og það virkar)
- Sérsniðnar meðferðir eftir þínum þörfum.
- Sýnikennslur
- Sjálfsmynda saga, þar sem þú getur fylgst með árangrinum.
- Áminningar, svo þú gleymir ekki að nota græjuna.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.