Vörulýsing
Bursti sem þú getur breytt og bætt eftir þínum krulluþörfum!
Þessi bursti hjálpar þér að móta krullurnar þínar eins og þú vilt.
Pinnarnir á burstanum eru rúnaðir til þess að minnka líkur á brotnu hári og klofnum endum.
Þú getur sniðið burstann eftir þínum krulluþörfum því það er hægt að taka pinnana úr honum og bæta þeim aftur í eftir því sem þarf.
Hárburstinn er hannaður fyrir krullugerðir 3A-4C.
Notkunarleiðbeiningar
Við mælum með því að nota burstann í blautt eða rakt hár með uppáhalds mótunarvörunni þinni, t.d. krullu krem-gelinu frá Imbue.
Best er að byrja að greiða hárið neðst og vinna sig upp að hársverði til þess að minnka líkur á brotnum eða klofnum endum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.