Vörulýsing
Slepptu ljómanum lausum. Geislaðu eins og gimsteinn með hverjum dásemdardropa af þessum magnaða fljótandi farða. Í hverri flösku leynist leiftrandi orka úr tveimur fágætum peridot-steinum sem hjálpa þér að magna upp náttúrulega orku húðarinnar og glæða hana nýju lífi*. Þar eru einnig milljónir gimsteinaagna, sem gera lokaáferðina lýtalausa og sindrandi.
Varan inniheldur háþróaða Re-Nutriv-húðnæringu og gerir húðina mjúka, teygjanlega og slétta. Húðin virðist jafnari. Smávægileg lýti og stíflaðar svitaholur hverfa sem dögg fyrir sólu. Silkimjúk og fljótandi áferð vörunnar fyllir húðina raka sem endist og endist, þannig að hún virðist ævinlega frískleg.
Þessi lýtalausi og fullkomni litur helst vel og lengi. Frábær ending. Þolir raka. Inniheldur SPF 20, eykur vörn gegn UVA- og UVB-geislum, stuðlar að teygjanleika og þéttleika húðarinnar og dregur úr fínum línum og hrukkum. Leyfðu fegurð húðarinnar að njóta sín til fullnustu.
Notkunarleiðbeiningar
Hristu vel. Berðu fljótandi farðann jafnt á húðina. Byrjaðu á miðju andlitinu og blandaðu svo út á við. Hægt er að bæta við til að byggja farðann upp og ná fullri þekju.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.