Ný og endurbætt formúla af Advanced Night Repair seruminu sem er með einkaleyfi á formúlunni til ársins 2033!
Advanced Night Repair droparnir draga úr ótímabærum einkennum öldrunar svo um munar. Húðin verður mýkri, fínar línur minnka og húðin virðist yngri, meira ljómandi og tónuð.
Nýja formúlan er bætt á þann hátt að :
- Húðin fær enn meiri raka og fyllingu í 72 tíma! – það er enn meira magn af hýalúronsýrum í formúlunni núna!
- Andoxandi áhrif formúlunnar eru sterkari.
- Formúlan styrkir húðina enn betur.
- Formúlan er enn olíu laus!
- Nýja formúlan er í endurvinnanlegu gleri.
Advanced Night Repair hentar öllum húðtegundum. Það inniheldur ekki olíur, paraben, þalöt (phthalates), súlföt né lyktarefni. Formúlan er prófuð af augn-og húðlæknum og er „non-acnegenic“ og stíflar því ekki húðholur.
Advanced Night Repair inniheldur velviljaðar bakteríur (probiotics sem róa húðina, draga úr roða og bólgum og styrkja húðina. Tripeptíð-32 sem hjálpa við uppbyggingu á kollageni og elastíni og vinna því gegn hrukkum og fínum línum. Þörunga og ger sem að hvetja húðina til að endurnýja sig ásamt því að vera ein fyrsta snyrtivaran til að innihalda hýalúronsýrur sem viðhalda rakanum í húðinni (og inniheldur nýja formúlan enn meira núna!). Saman vinna innihaldsefnin að heilbrigðri, rakafylltri og fallegri húð og berjast því við áhrifum ótímabærrar öldrunar.
Advanced Night Repair hefur unnið til 150 verðlauna og seljast 10 stk af seruminu á hverri mínútu.
Notkunarleiðbeiningar
Berið á hreina húð áður en rakakremið er notað. Notið nokkra dropa og berið mjúklega á andlit og háls. Má nota bæði kvölds og morgna.
Extra tip:
Setjið 1 dropa af Advanced Night Repair í farðann ykkar ef þið viljið gera hann meira ljómandi. Virkar einstaklega vel með Estée Lauder Double Wear. Einnig er hægt að setja örlítið í hyljara til að gera þá mýkri.
Hægt er að blanda Advanced Night Repair út í rakamaska og rakakrem fyrir extra raka og ljóma.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.