Vörulýsing
Uppgötvaðu tímalausa fegurð með ChitoCare beauty.
Anti-Aging Day Cream er styrkjandi dagkrem sem endurnærir húðina með djúpum og langvarandi raka, styrkir náttúrlega rakvörn húðarinnar og verndar gegn áhrifum oxunar.
Dagkremið er auðugt af náttúrulegum og mýkjandi andoxunarefnum sem auka raka og mýkja þurra húð, stuðla að bættri áferð og draga úr sýnileika fínna lína og hrukka.
98% innihaldsefna eru af náttúrulegum uppruna. Formúlan inniheldur meðal annars kítósan, hýalúronsýru, náttúrulegt E-vítamín og skvalín. Þessi innihaldsefni voru valinu vegna þess að þau eru framúrskarandi í húðvörum og tryggja stöðuga virkni allan daginn.
Kremið hjálpar til við að endurheimta ljóma svo hún fái heilbrigðara yfirbragð – fyrir sléttari og stinnari húð á hverjum degi.
Með ChitoCare Repair®, sem er einstök einkaleyfisvarin innihaldsefnablanda úr hágæða sjávarkítósani með kraftmikla andoxunarvirkni sem styður við endurnýjun húðarinnar, bætir rakastjórnun, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og veitir húðinni aukna vernd.
Fyrir hverja er varan:
Dagkremið hentar öllum húðgerðum og er sérstaklega gott fyrir þurra húð.
Notkunarleiðbeiningar
Berðu á hreina húð, bæði andlit og háls, daglega.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.