Vörulýsing
„Góð förðun snýst um að draga fram það sem gerir okkur sérstök“
Bursti nr. 26 – The Traditional Powder Brush Mjúkur og klassískur púðurbursti sem veitir jafna og fallega áferð og hægt er að nota á margvíslegan hátt. Burstinn hentar einkar vel þegar notast er við púður, sólarpúður og kinnalit.
Bursti nr. 23 – The Airbrush Brush Farðabursti sem veitir einstaka blöndun. Notist í fljótandi og kremkenndar förðunarvörur. Burstann er hægt að nota einan og sér eða í lok förðunar til þess að fullkomna blöndunina.
Bursti nr. 21 – The Angled Foundation Brush Hinn fullkomni skáskorni farðabursti. Þéttur og mjúkur farðabursti sem veitir einstaka blöndun og hjálpar til við að ná fram fallegri og jafnri áferð húðarinnar.
Bursti nr. 16 – The Big Concealer Brush. Stór og mjúkur hyljarabursti sem veitir góða blöndun og nær yfir mikið svæði í einu. Notist í fljótandi og kremaða hyljara og auðveldar blöndun fyrir náttúrulegt útlit.
Ferðasvampur Sérlega mjúkur farðasvampur sem veitir fallega blöndun. Svampinn skal ávallt nota rakann á andlitið. Svampinn þarf að þrífa reglulega.
Púðrari Mjúkur þríhyrndur púðursvampur sem hentar afar vel þegar matta á ákveðin svæði andlitsins.
Um Hörpu Kára:
Harpa Káradóttir förðunarfræðingur og eigandi Makeup Studio hefur síðustu tvo áratugi átt farsælan og fjölbreyttan starfsferil í förðunargeiranum. Í gegnum árin hefur hún sérhæft sig í förðunarkennslu og tileinkað sér faglega og skapandi nálgun þar sem áhersla er lögð á nákvæmni og persónulega þjónustu. Af mikilli ástríðu hefur hún byggt upp traustan feril á sviði förðunar og fegurðar með fagmennsku að leiðarljósi











Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.