Í síðustu viku deildum við mynd á samfélagsmiðlum sem að sagði frá því að í nýlegri könnun kom fram að 72% af konum þrífa aldrei farða burstana sína. Í sömu könnun voru tekin sýni af burstum sem að höfðu ekki verið þvegnir í mánuð, og fundust í þeim 8 tegundir af vondum bakteríum! Myndin vakti mikla athygli og því ætlum við að grafa aðeins meira í það viðfangsefni.
Okkur er kennt að þvo andlitið kvölds og morgna en hver er tilgangurinn í því ef að við tökum svo óhreina bursta og smyrjum bakteríum og óhreinindum yfir andlitið okkar þegar við berum á okkur farða?
Hér eru nokkrir hlutir sem að geta gerst ef þú þrífur ekki burstana þína reglulega:
- Þú getur stíflað húðina þína, fengið bólur, fílapensla og ójafna áferð.
- Þú getur fengið sýkingu! Ef að vondar bakteríur setjast í burstana þína sem þú nuddar nálægt slímhúðinni þá gætir þú nælt þér í augnsýkingu, sveppi, vírusa, streptókokka og eða aðrar sýkingar.
- Förðunin þín lítur verr út þar sem að burstarnir ná ekki að sinna sínu hlutverki og eru þaktir gömlum farða og litum sem þú ætlaðir kannski ekki að nota.
- Óhreinir burstar ýta undir hrukkumyndun þar sem að sindurefnin geta valdið sundrun í kollageni og teygjanleika húðarinnar.
Hversu oft á þá að þvo burstana? Það fer að sjálfsögðu eftir notkun og hvernig þú geymir burstana þína. Ef þú notar þá daglega er alls ekki vitlaust að þrífa þá einu sinni í viku, þá sérstaklega bursta sem þú notar í farða og blotna í notkun þar sem að bakteríur þrífast betur í röku umhverfi. Burstar sem þú notar í augnförðun er best að þvo 1-2x í mánuði eftir því hversu oft þú málar þig um augun. Ef þú geymir burstana þína í snyrtivöru töskunni þinni, en ekki í sér tösku eða glasi á borðinu þá er einnig sniðugt að þrífa þá oftar en ella, þar sem þeir komast í snertingu við fleiri hluti.
Að hreinsa bursta:
- Notaðu volgt vatn og bleyttu burstana. Reynið að forðast það að bleyta of ofarlega þar sem að hárin eru límd við skaftið á burstanum, en hárin gætu losnað ef þau blotna of mikið.
- Notið burstasápu eins og t.d. Real Techniques sápuna eða sápurnar frá Beautyblender og nuddið burstunum annaðhvort í hendinni eða á burstamottu.
- Skolið burstana vel þar til að þeir eru orðnir alveg hreinir.
- Kreistið allt vatn úr burstunum og mótið þá í sitt upprunnalega form.
- Látið burstana þorna á handklæði.
Að hreinsa Beautyblender:
Þú færð fljótt tilfinninguna fyrir því hversu oft þú þarft að þvo burstana ef þú hefur í huga hvaða skaða það getur gert að sleppa því. 🙂
Íris Björk Reynisdóttir