Vörulýsing
„Lykillinn á bakvið góða förðun eru góð verkfæri“
By Harpa Kára Eye Set inniheldur:
Bursti nr. 01 – Small Angled Brush
Afar fíngerður skáskorinn bursti sem hentar vel í eyeliner og í mótun augabrúna.
Bursti nr. 04 – The Buffing Brush
Lítill blöndunarbursti sem hægt er að nota á ýmsa vegu. Hentar einstaklega vel til að gefa þétta og djúpa áferð á þau svæði sem óskað er eftir.
Bursti nr. 09 – The Perfect Eyeshadow Brush
Klassískur augnskuggabursti til að fá þétta og fallega áferð af augnskugga. Stærð burstans hentar öllum umgjörðum afar vel.
Bursti nr. 11 – The Blending Brush
Hinn fullkomni blöndunarbursti. Hentar vel til að fá jafna og fallega blöndun þegar kemur að augnsvæðinu. Nýtist einnig afar vel í kremaðar vörur á augnsvæðið.
Bursti nr. 14 – The Controlling Blending Brush
Þéttur blöndunarbursti sem hægt er að nota á ótal vegu. Hvort sem það er til að leggja augnskugga á augnsvæðið eða til að fullkomna blöndunina.
Um Hörpu Kára:
Harpa Káradóttir förðunarfræðingur og eigandi Makeup Studio hefur síðustu tvo áratugi átt farsælan og fjölbreyttan starfsferil í förðunargeiranum. Í gegnum árin hefur hún sérhæft sig í förðunarkennslu og tileinkað sér faglega og skapandi nálgun þar sem áhersla er lögð á nákvæmni og persónulega þjónustu. Af mikilli ástríðu hefur hún byggt upp traustan feril á sviði förðunar og fegurðar með fagmennsku að leiðarljósi.









Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.