Vörulýsing
Skýjalaga harðvaxperlur í bleikum og bláum tónum með sætum cotton candy-ilmi. Vaxið harðnar á húðinni og því þarf enga vaxstrimla. Vaxið grípur bæði fín og gróf hár og fjarlægir þau frá rót. Hentar til notkunar bæði á andlit og líkama, meðal annars á fætur, handleggi og bikinísvæði. Vaxið þarf að hita í sérstökum örbylgjubolla frá Sliick eða vaxpotti. Vaxformúlan inniheldur meðal annars jojobaolíu, ólífuolíu, hveitikímolíu, vínberjafræolíu og E-vítamín.
Notkunarleiðbeiningar
Setjið æskilegt magn af vaxperlum í vaxhitara eða þar til gerðan örbylgjubolla. Hitið þar til vaxið hefur náð þykkri, karamellulíkri áferð og hrærið vel. Prófið ávallt hitastig vaxsins á litlu húðsvæði áður en það er borið á (gott að setja á innanverðan úlnlið). Húðin skal vera hrein og þurr og bestur árangur fæst þegar hárin eru um 6 mm eða lengri. Berið þykkt lag af vaxi á í vaxtarstefnu háranna. Látið vaxið kólna þar til það er orðið fast en enn sveigjanlegt. Haldið húðinni strekktri og dragið vaxið af hratt og ákveðið gegn vaxtarstefnu háranna og samsíða húðinni.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.